Lést í umferðarslysi

Gísli Ólafur Ólafsson.
Gísli Ólafur Ólafsson.

Karlmaðurinn, sem lést á Eyjafjarðarbraut fimmtudaginn 20. janúar, hét Gísli Ólafur Ólafsson til heimilis að Vættagili 21 á Akureyri. Gísli var 49 ára gamall, fæddur 26. október 1961. Hann lætur eftir sig eiginkonu, fjögur börn á aldrinum 8-28 ára og eitt barnabarn.

Gísli lést eftir að hann varð fyrir fólksbifreið þegar hann var að skokka á Eyjafjarðarbraut. Hann var fluttur með sjúkrabíl á Sjúkrahúsið á Akureyri og úrskurðaður látinn þegar þangað var komið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert