Innanríkisráðherra féllst ekki á niðurstöðu umboðsmanns Alþingis um að viðhlítandi lagaheimild væri ekki til staðar fyrir ráðuneytið til að ákveða að þeir sem sættu akstursbanni stæðu sjálfir undir kostnaði af því að sækja sérstakt námskeið. Ráðuneytinu hafa borist þrjá beiðnir um endurgreiðslu kostnaðar en þeim öllum hafnað.
Málavextir eru þeir að kona ein kvartaði til umboðsmanns Alþingis vegna upphæðar gjalds fyrir sérstakt námskeið sem henni væri að lögum skylt að sækja til að fá akstursbanni aflétt og öðlast aftur ökuréttindi. Umboðsmaður taldi ekki lagaheimild til staðar til innheimtu gjaldsins og var þeim tilmælum beint til ráðuneytisins að leita leiða til að rétta hlut konunnar, eða gera að öðrum kosti viðhlítandi ráðstafanir í tilefni af álitinu varðandi framkvæmd sérstakra námskeiða.
Valgerður Bjarnadóttir, þingmaður Samfylkingar, spurði innanríkisráðherra út í hvað gert hefði verið í kjölfar álits umboðsmanns. Í svari Ögmundar Jónassonar, innanríkisráðherra, segir, að í stuttu máli var niðurstaða ráðuneytisins að ekki yrði ráðið af lögum eða lögskýringargögnum að hið sérstaka ökunám teldist til lögmæltrar opinberrar þjónustu. Þar af leiðandi yrði ekki gerður sérstakur greinarmunur á hinu almenna ökunámi annars vegar og hinu sérstaka ökunámi hins vegar hvað varðar heimildir til gjaldtöku vegna námsins.
Hins vegar féllst ráðherrann á að lagaumhverfið mætti vera skýrara. En í ljósi afstöðu ráðuneytisins hefur það ekki talið tilefni til sérstakra ráðstafana. Þó er bent á að í frumvarpi til nýrra umferðaralaga er ákvæðið um akstursbann nokkuð ítarlegra en núgildandi ákvæði.