Einn og einn skjálfti við Krýsuvík

Hverir og reykur við Kleifarvatn.
Hverir og reykur við Kleifarvatn.

Enn skelfur jörð við Krýsuvík, en að sögn Sigþrúðar Ármannsdóttur, landfræðings hjá Veðurstofu Íslands, mælast jarðskjálftar þar af og til.

„Upp úr klukkan hálf tíu í gærkvöldi fór heldur að róast. En það kemur einn og einn skjálfti og þeir eru allir innan við þrjú stig,“ sagði Sigþrúður í samtali við mbl.is.

Hún sagði að Veðurstofu hefði ekki borist tilkynningar um að fólk fyndi fyrir skjálftunum í nótt og í morgun, enda fyndi fólk að öllu jöfnu lítið fyrir svo vægum skjálftum.

Klukkan rúmlega hálf níu í morgun hafði síðasti skjálfti mælst klukkan 7:05. „Það lítur út fyrir að þetta sé að fjara út. En maður veit aldrei,“ sagði Sigþrúður.

Aukinn viðbúnaður hefur verið á Veðurstofu Íslands vegna þessa um helgina og í nótt og það mun verða áfram.

„Fólkið okkar í Krýsuvík er vant svona jarðskjálftum. Jörðin hefur verið að hristast þarna annað slagið í gegnum tíðina. Ég hef verið í sambandi við það og það hafa ekki komið upp nein vandamál vegna þessara skjálfta núna,“ segir Lovísa Christiansen, forstöðumaður meðferðarheimilisins í Krýsuvík,  þar sem jörðin skalf ítrekað um helgina.



Fjölmargir skjálftar hafa mælst á Krýsuvíkursvæðinu.
Fjölmargir skjálftar hafa mælst á Krýsuvíkursvæðinu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert