Stjórnlaganefnd segir, að það sé löggjafans að ákveða hverjum skýrsla nefndarinnar verður afhent, en aldrei hafi annað staðið til en að skýrslan verði opin almenningi bæði í prentuðu máli og á netinu, eins og ítrekað hafi komið fram í viðtölum við fjölmiðla.
Fram kemur í tilkynningu frá nefndinni, að skýrslan verði í tveimur bindum. Fyrra bindið sé í prentun en hið síðara verði tilbúið til prentunar í þessari viku.