Vonskuveður fram eftir degi

Við Reykjavíkurhöfn. Mynd úr safni.
Við Reykjavíkurhöfn. Mynd úr safni. mbl.is/Árni Sæberg

Veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir að ekki sé útlit fyrir að veður muni skána sem nokkru nemi um vestanvert landið fyrr en í kvöld.

Áfram gangi á með mjög þéttum éljum og nái vindur á fjallvegum eins og í Bröttubrekku og á Holtavörðuheiði yfir 20 metra á sekúndu á meðan hryðjurnar gangi yfir. Þá verði skyggni sama sem ekkert. 

Sömu sögu sé að segja víða á Vestfjörðum og Snæfellsnesi.

Suðvestanlands sé einnig stutt á milli éljanna og vindur á bilinu 15-20 metrar á sekúndu.  Í kvöld lægir og dregur þá úr mestu hryðjunum.

Að sögn Vegagerðarinnar er hálka, hálkublettir og éljagangur á Suðurlandi. Hálka og éljagangur er á Hellisheiði og í Þrengslum. Á Reykjanesbraut
og Kjalarnesi eru hálkublettir og éljagangur.

Á Vesturlandi er hálka og stórhríð á Holtavörðuheiði og mjög lítið skyggni, hálka og éljagangur á Bröttubrekku. Hálkublettir og éljagangur er á Snæfellsnesi.

Á Vestfjörðum er þæfingsfærð og stórhríð á Klettshálsi, Kleifaheiði, Hálfdáni og Þröskuldum. Þungfært og stórhríð er á Steingrímsfjarðarheiði.

Á Norður- og Norðausturlandi eru hálkublettir á Þverárfjalli, hálka og skafrenningur á Vatnsskarði og Öxnadalsheiði. Hálkublettir eru á Mývatnsöræfum og á Hólasandi.

Á Austurlandi er hálka á Möðrudalsöræfum og hálkublettir á Fjarðarheiði en annars greiðfært.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert