Allt hvítt á Akureyri

Snjóað hefur á Akureyri frá því klukkan rúmlega átta í morgun. Það var því ekki sumarlegt á golfvellinum að Jaðri þegar Skapti Hallgrímsson hitti Steindór vallarstjóra Ragnarsson að máli laust fyrir hádegi.

Snjókomu er spáð þar til fram yfir helgi og næturfrosti en líklega frystir ekki yfir daginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert