Aukaflug til Norðurlandanna

mbl.is/Sigurður Bogi

Icelandair hefur bætt við þremur aukaflugum  við áður kynnta áætlun sína í kvöld. Flogið verður til Kaupmannahafnar og Osló kl. 20:45 og til Stokkhólms um miðnætti. Jafnframt verður flogið frá þessum borgum í nótt til Keflavíkur.

Félagið segir, að þessi flug séu sett upp til þess að koma til móts við þá farþega sem ekki komust leiðar sinnar á síðasta sólarhring.

Icelandair segir, að tímasetningar gætu breyst með litlum fyrirvara. Eru farþegar hvattir til þess að fylgjast vel með fréttum og komu- og brottfarartímum á textavarpi og vefmiðlum.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert