Greindi fyrstur frá eldgosinu

Gosið að hefjast á laugardagskvöld. Ingólfur Bruun tók myndina.
Gosið að hefjast á laugardagskvöld. Ingólfur Bruun tók myndina. Reuters

Rétt eftir klukkan sex á laugardagskvöld birti Jón Frímann Jónsson færslu á vefsvæði sínu undir yfirskriftinni „Eldgos líklega að hefjast í Grímsfjalli.“

Jón Frímann byggði skrif sín á gögnum Veðurstofu Íslands sem hann fylgist grannt með daglega. Færslan vakti athygli blaðamanns fréttavefjar Morgunblaðsins, mbl.is, sem grennslaðist fyrir um málið hjá Veðurstofu Íslands og kl. 18:45 birtist á mbl.is frétt um að eldgos væri að hefjast. Um stundarfjórðungi síðar sendu almannavarnir út tilkynningu sama efnis.

Jón Frímann hefur um árabil haldið úti vefsvæði um jarðskjálfta og eldhræringar á Íslandi. Eftir eldgosið í Eyjafjallajökli fann hann fyrir miklum áhuga útlendinga og hefur upp frá því skrifað á ensku. Hann hefur safnað um sig miklum fjölda fylgismanna en heimsóknir á hverjum mánuði eru um fimmtíu þúsund, þ.e. þegar lítið sem ekkert er að gerast. Frá því gos hófst í Grímsvötnum hafa heimsóknir verið um og yfir þrjátíu þúsund á sólarhring.

Upplýsingagjöf ekki nægjanleg

„Ég kíki reglulega á mæla Veðurstofunnar og sá þarna um sexleytið að þá kom toppur á mælum í kringum Vatnajökul. Og toppurinn líktist þeim sem ég sá í eldgosinu í Eyjafjallajökli á síðasta ári,“ segir Jón Frímann en auk þess má taka fram, að hann heldur úti vefsvæði sínu frá Danmörku þar sem hann býr sem stendur.

Jón heldur raunar úti tveimur síðum, einni á íslensku og annarri á ensku. „Eftir Eyjafjallajökulsgosið ákvað ég að setja upp þetta enska blogg svo útlendingar gætu fylgst með því mér þótti upplýsingagjöf til fólks erlendis ekki nægilega góð um það sem var að gerast,“ segir Jón sem reynir að uppfæra síðu sína reglulega með nýjum upplýsingum.

Líflegt í athugasemdakerfi

Fjöldi athugasemda er við hverja færslu Jóns Frímanns og fjölgaði þeim gríðarlega á undanförnum dögum. Hann segir það aðallega Evrópubúa sem sækja síðuna en þó séu dæmi um heimsóknir frá Bandaríkjunum, Asíu og Ástralíu. Flestir séu þó frá Benelux-löndunum, Noregi og Danmörku.

Af athugasemdunum má sjá að bæði er um að ræða fólk sem hefur brennandi áhuga á jarðvísindum líkt og Jón Frímann og eru þá skoðanaskipti um gang mála. Einnig eru aðrir sem eru afla sér upplýsinga og spyrja almennra spurninga um gosið og áhrif þess, t.d. á flugsamgöngur.

Sjálfur er Jón Frímann svo með mæla á Hvammstanga og við rætur Heklu og fylgist því sjálfur grannt með því sem gerist í iðrum jarðar.

Upplýsingar og gögn

Á vefsvæði Jóns Frímanns má sjá að hann hefur verið iðinn við uppfærslur undanfarna daga, ásamt því að svara fyrirspurnum í athugasemdakerfi sínu. Með færslum sínum birtir hann gögn sem sýna vel gang eldgossins í Grímsvötnum og hlekki á fréttasíður.

Útlendingar taka virkan þátt í upplýsingaleit og birta öskukort af erlendum síðum, rifja upp fyrri gos og spá í framtíðina.

Jón Frímann Jónsson.
Jón Frímann Jónsson.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert