Bílum stolið í Þorlákshöfn

mbl.is/ÞÖK

Þremur bifreiðum var stolið í Þorlákshöfn um helgina. Að sögn lögreglunnar á Selfossi þá fundust þær allar en tvær þeirra höfðu skemmst. Tveir voru handteknir í tengslum við eitt málið.

Lögreglan segir að í einu tilfelli hafi tveir ungir menn stolið bifreið sem stóð ólæst við Oddabraut aðfararnótt laugardags. Mennirnir voru báðir ölvaðir en annar þeirra settist á bak við stýrið og ók af stað. Ökuferðinni lauk með því að bifreiðin rakst á annan bíl og endaði svo í húsagarði. Báðir bílarnir skemmdust mikið.

Lögreglan handtók mennina og færði þá til yfirheyrslu. 

Þá var annarri bifreið stolið sömu nótt en að sögn lögreglu þá fannst hún óskemmd á Eyrarbakkavegi á sunnudag. 

Þriðju bifreiðinni var stolið aðfaranótt sunnudags frá Selvogsbraut en fannst daginn eftir skammt utan við Þorlákshöfn. Þar hafði hliðarrúða verið brotin. Var tösku með fartölvu og fleiri munu, sem var í bifreiðinni, stolið. 

Lögreglan biður þá sem veitt geta upplýsingar um þá bifreið að hafa samband í síma 480 1010. Í öllum tilvikunum þrem voru ökutækin ólæst og lyklar aðgengilegir.

Bílar skemmdir og innbrot í trillu

Þá voru unnar skemmdir um helgina á tveimur bifreiðum sem stóðu við Unubakka 48 í Þorlákshöfn. 

Í morgun barst svo tilkynning um innbrot í trillu í smábátahöfninni í Þorlákshöfn.  Engu var stolið en mikið rótað auk þess sem pappír hafði verið lagður á hitablásara sem var í gangi.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert