Best að ljósmynda á Íslandi

Á vefsíðunni popphoto.com er að finna lista yfir 25 bestu …
Á vefsíðunni popphoto.com er að finna lista yfir 25 bestu staði jarðarinnar til að ljósmynda. Meðal annars er mælt með Geysissvæðinu.

Geysissvæðið í Haukadal er á lista yfir 25 bestu staði jarðarinnar til að ljósmynda en listinn er birtur á síðunni popphoto.com.

Á listanum er Geysissvæðið flokkað sem náttúruundur en mælt er með ferðalagi á svæðið til að sjá hverinn Strokk og taka ljósmyndir. Jafnframt er mælt með því að ljósmyndarar sjái Bláa lónið og nái myndum af því.

Í tengslum við listann er fjallað stuttlega um Ísland á síðunni og meðal annars sagt að þrátt fyrir misvísandi nafn sé hér að finna hveri, jökla, eldfjöll, fossa og fjöll ásamt fjölmörgu öðru sem hægt er að ljósmynda. Sagt er frá Jökulsárlóni og íshellum í Kverkfjöllum auk þess sem mælt er með að fólk keyri hringinn í kringum landið.

Listann í heild sinni má sjá á vefsíðu popphoto.com.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert