Rannsóknarréttur og nornaveiðar

Sr. Örn Friðriksson, fyrrverandi prófastur, segir í bréfi til rannsóknarnefndar þjóðkirkjunnar, að það gæti verið að kirkjan sé að gera alvarleg mistök með því að stofna „rannsóknarrétt" og beinlínis hefja nornaveiðar þar sem konur séu beinlínis hvattar til að ákæra presta, lifandi eða dauða.

Segir Örn, að það hafi engan veginn verið „alvarleg mistök" af sinni hálfu að taka þátt í að samþykkja yfirlýsingu prófastastefnu árið 1996. Niðurstaða rannsóknarnefndarinnar er hins vegar sú, að svo hafi verið. 

Örn segist ekki viss um að kirkjuþing hafi haft rétt til að skipa rannsóknarnefndina og að hún sé ekki dómbær í málinu. Að honum sæki sú tilfinning, að þarna sé kirkjan að reyna að fórna einhverjum af sínum eigin mönnum í von um að styrkja afstöðu sína hjá almenningi. 

Hann segist ekki muna þá atburði vel, sem nefndin spurði hann um. Hann hafi hins vegar ekki verið í neinum vandræðum með að samþykkja yfirlýsingu prófastanna. Lýsir Örn því í bréfinu til nefndarinnar, að hann efist um að konurnar fari með rétt mál þegar þær ásaka Ólaf Skúlason um kynferðisbrot. 

Segist Örn hafa lesið, að ástæður þess að konur kæru karlmenn ranglega fyrir kynferðisbrot væri til dæmis von um peninga, öfund, afbrýðisemi, hatur, hefnd eða löngun til að komast í sviðsljósið.

„Ég varð fljótt var við það, að Mývetningar teldu hina síðast nefndu ástæðu nokkuð áberandi í þessu máli. Um (Sigrúnu) Pálínu (Ingvarsdóttur) skal ég ekkert segja - en henni hefur þó sannarlega tekist að komast í sviðsljósið. Og nú virðast ýmsar fleiri konur melda sig - hvort sem það er nú af löngun til þess að fá bita af kökunni," segir Örn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert