Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sæmdi ellefu Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu.
Þeir eru:
1. Dr. Andrés Arnalds fagmálastjóri Landgræðslu ríkisins, Mosfellsbæ,
riddarakross fyrir störf á vettvangi landgræðslu og jarðvegsverndar
2. Hafdís Árnadóttir kennari og stofnandi Kramhússins, Reykjavík,
riddarakross fyrir frumkvæði á sviði heilsueflingar og líkamsræktar
3. Hólmfríður Gísladóttir kennari, Reykjavík, riddarakross fyrir
brautryðjandastörf í þágu flóttafólks og aðfluttra íbúa
4. Júlía Guðný Hreinsdóttir fagstjóri á Samskiptamiðstöð
heyrnarlausra og heyrnarskertra, Reykjavík, riddarakross fyrir
störf í þágu íslensks táknmáls og réttindabaráttu
5. Kári Jónasson fyrrverandi fréttastjóri, Reykjavík, riddarakross
fyrir störf á vettvangi fjölmiðla
6. Lovísa Christiansen framkvæmdastjóri
Krýsuvíkursamtakanna, Hafnarfirði, riddarakross fyrir störf í
þágu áfengis- og vímuefnaneytenda
7. Sjöfn Ingólfsdóttir fyrrverandi formaður Starfsmannafélags
Reykjavíkur, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til
félagsmála og réttindabaráttu launafólks
8. Skúli Alexandersson fyrrverandi alþingismaður og oddviti,
Hellissandi, riddarakross fyrir störf í þágu atvinnulífs,
menningar og sögu heimabyggðar
9. Sverrir Bergmann Bergsson taugalæknir, Garðabæ,
riddarakross fyrir störf í þágu MS-sjúklinga og á vettvangi
heilbrigðismála og læknavísinda
10. Þorsteinn Vilhjálmsson prófessor, Reykjavík, riddarakross
fyrir framlag til vísinda, kennslu og miðlunar fræðilegrar
þekkingar til almennings
11. Þóra Einarsdóttir söngkona, Reykjavík, riddarakross fyrir
framlag til íslenskrar tónlistar