37,4 milljarða aflaverðmæti

Aflaverðmætið jókst um einn millarð eða 2,8% á milli ára.
Aflaverðmætið jókst um einn millarð eða 2,8% á milli ára. mbl.is

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 37,4 milljörðum króna á fyrstu þremur mánuðum ársins 2011 samanborið við 36,4 milljarða á sama tímabili 2010. Aflaverðmæti hefur því aukist um einn milljarð eða 2,8% á milli ára, samkvæmt frétt Hagstofunnar.

„Aflaverðmæti botnfisks var í lok mars orðið 23,3 milljarðar og dróst saman um 15,4% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam tæpum 27,6 milljörðum króna. Verðmæti þorskafla var um 13,8 milljarðar og dróst saman um 9,6% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam tæpum 3,4 milljörðum og dróst saman um 28,7%, en verðmæti karfaaflans nam 2,8 milljörðum, sem er 27,6% samdráttur frá fyrstu þremur mánuðum ársins 2010. Verðmæti ufsaaflans dróst saman um 14,9% milli ára í 1,2 milljarða.

Verðmæti flatfiskafla nam rúmum 2,8 milljörðum króna í janúar til mars 2011, sem er 31% aukning frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 68,3% milli ára og nam tæpum 10,8 milljörðum. Má rekja þá verðmætaaukningu til aukins loðnuafla. Verðmæti hans nam 8,7 milljörðum króna og jókst um 248% milli ára.
 
Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 21,5 milljörðum króna og jókst um 27,1% frá árinu 2010. Aflaverðmæti sjófrystingar var tæpir 8,8 milljarðar sem er 16% samdráttur milli ára. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands dróst saman um 11% milli ára og var um 5,4 milljarðar,“ segir í frétt Hagstofunnar.

Frétt Hagstofu Íslands

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert