Björg aðstoðaði Kidda

Björg fylgir Kidda HF til hafnar í Ólafsvík á sjöunda …
Björg fylgir Kidda HF til hafnar í Ólafsvík á sjöunda tímanum í kvöld. mbl.is/Alfons

Björgunarbáturinn Björg frá Rifi fór sína aðra ferð í dag til að aðstoða smábát. Kom Björg trillunni Kidda HF. til aðstoðar þar sem báturinn var skammt frá landi út af Hellissandi er gangtruflanir gerðu vart um sig í vélinni.

Páll Stefánsson, skipstjóri á Björg, sagði í samtali við mbl.is að þeir hefðu fylgt Kidda til lands í Ólafsvík til öryggis þar sem kalda veður væri nú á Snæfellsnesi. Trillan sigldi fyrir eigin vélarafli á 4 mílna ferð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert