Fólksflótti úr leikskólum

Kátir krakkar í leikskólanum Kvistaborg í Fossvogi.
Kátir krakkar í leikskólanum Kvistaborg í Fossvogi.

„Það kemur mér ekki á óvart að leikskólakennurum sé að fækka í Reykjavík,“ segir Fjóla Þorvaldsdóttir, varaformaður Félags leikskólakennara, FL.

Hún segir frekari fækkun leikskólakennara í borginni yfirvofandi. Fólk sé ósátt við vinnuumhverfið í kjölfar breytinga og sameininga og margir hugsi sér til hreyfings og hafi hug á að starfa á leikskólum í öðrum sveitarfélögum.

Stjórnendum 34 leikskóla í borginni var sagt upp í vor þegar skólarnir voru sameinaðir, en eftir breytinguna eru skólarnir 15. Ráðið hefur verið í stöður leikskólastjóra og verið er að leggja lokahönd á ráðningar aðstoðarleikskólastjóra.

Í fréttaskýringu um mál þessi í Morgunblaðinu í dag segir starfsmannastjóri leikskólasviðs Reykjavíkurborgar, Ingunn Gísladóttir, að nokkrir fyrrverandi stjórnendur hafi fengið stjórnunarstöður á öðrum leikskólum borgarinnar, sumir hafi farið í deildarstjórastörf, aðrir snúið sér að öðrum störfum eða hafið störf hjá öðrum sveitarfélögum. „Það er ljóst að menntuðum leikskólakennurum er að fækka, því miður,“ segir Ingunn Gísladóttir.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert