Heimilaður var 7 tonna leyfilegur hámarksöxulþungi á Dómadalsleið og á Fjallabaksvegi nyrðri. Ákveðið hefur verið að gera undantekningu með fólksflutningabifreiðar og er heimilaður í þeirra tilviki 10 tonna öxulþungi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.
Dómadalsleið, F225, er lokuð á kafla en hjáleið er framhjá lokuninni,
sem lengir leiðina um 3,5 km. Lokunin mun vara til 18. júlí.