SUS fagnar mögulegu verkfalli Sinfóníunnar

Sinfóníuhljómsveit Íslands er með aðstöðu í Hörpu
Sinfóníuhljómsveit Íslands er með aðstöðu í Hörpu mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Ungir sjálfstæðismenn (SUS) fagna mögulegu verkfalli tónlistarmanna Sinfóníuhljómsveitar Íslands og hvetja stjórnvöld til að nota tækifærið og hætta öllum fjárstuðningi við hljómsveitina. Sinfónían ætti að geta staðið undir sér með miðasölu og styrkjum frá fyrirtækjum og einstaklingum, eins og aðrar hljómsveitir, segir í tilkynningu frá SUS.

„Samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2012 er gert ráð fyrir að opinberir aðilar styrki hljómsveitina um tæplega 800 milljónir króna. Er þá ótalinn um einn milljarður króna sem rennur frá ríki og borg til Hörpu, sem nýtist Sinfóníunni einnig að hluta. Hægt væri að nota það fé sem sparast m.a. til að hætta við boðaðan niðurskurð á Landspítalanum."

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert