Lýsa ánægju með viðræðuferlið

Stefan Fule stækkunarstjóri Evrópusambandsins.
Stefan Fule stækkunarstjóri Evrópusambandsins.

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra tók í dag á móti Stefan Füle, yfirmanni stækkunarmála Evrópusambandsins, í Stjórnarráðinu. Í sameiginlegri yfirlýsingu eftir fundinn lýsa þau mikilli ánægju með viðræðuferlið vegna umsóknar Íslands um aðild að ESB.

Á fundinum var rætt um framvindu aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið, en í dag fór fram í Brussel ríkjaráðstefna Íslands og ESB.  Þar  voru tveir samningskaflar, um hugverkarétt og frjálsa för fólks, opnaðir og þeim lokað. Fjórir kaflar til viðbótar voru opnaðir á ríkjaráðstefnu í júní og tveimur þeirra lokað þá þegar.

Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að forsætisráðherra hafi lýst ánægju með ferlið og kvað mikilvægt að hreinskiptin og traust samskipti væru í samningaviðræðunum, bæði við framkvæmdastjórn og aðildarríkin, enda væri opnun stærri og erfiðari kafla í samningaferlinu framundan.

Forsætisráðherra og stækkunarstjórinn gáfu út eftirfarandi sameiginlega yfirlýsingu:

„Við erum ánægð með að viðræðuferli Íslands vegna umsóknar um aðild að Evrópusambandinu hefur gengið með ágætum.  Stækkunarskrifstofa framkvæmdastjórnarinnar er mikilvægur og traustur samstarfsaðili, bæði aðildarríkjanna og Íslands í því að skipuleggja ferlið og viðræðurnar. Við höfum rætt um frekari skref í ferlinu og sjáum fram á góða samvinnu við opnun stærri kafla sem færa nýjar áskoranir, og finna gagnlegar lausnir sem henta báðum aðilum."

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert