Biskup fraus á æskulýðsmóti
Landsmót æskulýðsfélaga kirkjunnar var sett á Selfossi í gærkvöldi. Um 500 unglingar og leiðtogar koma þar saman til að gleðjast, fræðast og safna fé fyrir jafnaldra sína í Japan.
Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, setti landsmótið og þakkaði unglingunum fyrir gott starf og góðan hug: „Nú veit ég af góðverkahelgi landsmótsins. Þar munuð þið leggja mikið af mörkum til þeirra sem treysta á aðstoð. Ég veit að hérna inni eru mörg gullhjörtu, sem bera umhyggju fyrir öðrum og láta gott af sér leiða,“ sagði biskup í ávarpi til unga fólksins.
Í setningarræðu sinni tók Karl biskup ásamt leiðtogum á landsmótinu þátt í flash-mob á vegum LÆK og fraus í tæpa mínútu við mikinn fögnuð unglinganna. LÆK er leiklistarstarf æskulýðsstarfs kirkjunnar. Það hefur starfað í sumar og sett upp gjörninga á 17. júní og menningarnótt sem tókust vel.
Unglingar á landsmótinu ætla að safna peningum til styrktar jafnöldrum sínum í Japan sem eiga um sárt að binda eftir jarðskjálftann fyrr á þessu ári. Unglingarnir í æskulýðsfélaginu Kýros á Vopnafirði hófu söfnun í síðustu viku og þau afhentu 60.000 krónur við setninguna. Unglingarnir frá Vopnafirði útdeildu líka rauðum hjörtum sem á stóð: „Ég er vinur“. Vinavikan á Vopnafirði hefur þannig breiðst út um allt land í gegnum landsmótið á Selfossi.
Tugir sjálfboðaliða starfa á landsmótinu
Tugir sjálfboðaliða hafa undirbúið landsmótið í eitt ár og starfa á því. „Án þeirra gætum við ekki haldið svona veglegt landsmót,“ segir Rakel Brynjólfsdóttir, landsmótsstjóri. Í gærkvöld var kvöldvaka og að henni lokinni var á dagskrá sundlaugarpartý í sundlaug Selfoss. Þar söng Ingó og lék fyrir unglingana á landsmótinu. Á sama tíma stóð NeDó Sport fyrir íþróttadagskrá. Landsmótinu lýkur á sunnudag með messu í Selfosskirkju.
Innlent »
- Nammigrísir gripnir glóðvolgir
- EA fjárfestingarfélag þarf ekki að greiða sekt
- Nauðgunardómur staðfestur
- Þjóðin taki af skarið
- Tólf stigin duga ekki Íslandi til sigurs
- Hráefni gætu hækkað við inngöngu í ESB
- Stýrivaxtahækkun „algjört kjaftshögg“
- Minni losun gróðurhúsalofttegunda frá áliðnaði
- Myndbandsupptaka dugði ekki til
- Ræddu umsóknir um áheyrnaraðild
- Vilji ekkert leggja á sig
- Stuðningur við Íslendinga í fangelsum erlendis
- Verk Leifs vígt fljótlega
- Listaverk í snjónum á Seyðisfirði
- Nýir skólastjórar við þrjá grunnskóla
- 56% jákvæð gagnvart áliðnaði
- Margir óku of hratt í Kópavogi
-
Gróðurhús í útrás til Kína
- List án landamæra fékk mannréttindaverðlaun
- Skína smástjörnur fengu hæsta styrkinn
- Harma hættulegar lyklakippur
- Fjögur ríki skiluðu athugasemdum
- Minningartónleikar um Kristján Eldjárn
- Gaf blóð í 100. skiptið
- Leiguverð hækkaði milli mánaða
- Þarf að afhenda upplýsingar um konurnar
- Fjölluðu um ábendingar Ríkisendurskoðunar
- Hjólaleiðir í vinnuna kortlagðar
- Fíkniefnasali handtekinn
- 1.000 hjólreiðamenn fengu sér kaffi
- Hjólreiðar æ vinsælli ferðamáti
- Kannabisræktun í Garðabæ
- Vinningstillagan kynnt í byrjun júní
- Illa undirbúin og stórgölluð
- Þarf að greiða 500 milljónir
- Verðmunur á orku- og veituþjónustu
- Fjórtán ára með fíkniefni
- Fjarskiptabúnaðurinn veldur ekki skaða
- Stóraukin skuldsetning Reykjanesbæjar
- Forsetinn farinn til Tékklands
-
Álfunum þykir hunangið best
- Rannsókn á stunguárás langt komin
- Telja gróflega á sér brotið
- Vetrarfærð norðanlands og austan
- Örvar Guðni: Útreikningurinn ofmetur auðlindarentuna
- Íslendingur hlýtur heiðursverðlaun í Þýskalandi
- Íshellir myndast í Gígjökli
- Villtist inn á lokaðan veg
- Gömul ösp barkarflett
- Mannsins enn leitað
- Á annað hundrað skjálftar hafa orðið við flekaskilin
- Ekki á formannsbuxunum
- Víða laus embætti
- Manns leitað við Dettifoss
- Ók á ljósastaur
- Nýjasta skipið selt úr landi?
- „Færi valdið til fólksins“
- Biðlistar lengjast mikið á Grensás
- Launaskrið virðist vera á vinnumarkaði
- „Alls staðar rok“
- Kvótafrumvarp
- Forsetakosningar 2012
- Umsókn um aðild að ESB
- Dómur Hæstaréttar um gengislán
- Kjaraviðræður
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 23. október 2011, Innlent „Ég táraðist af gleði“
- Laugardagur, 29. október 2011, Innlent 500 krakkar safna fyrir japönsk börn
- Laugardagur, 8. október 2011, Innlent Hundruð ungmenna á landsmóti
- Sunnudagur, 23. október 2011, Innlent Kærleiksmaraþon á Vopnafirði
- Miðvikudagur, 4. maí 2011, Innlent Hrunið bitnaði á kirkjunni
-
Gabríel á forsíðu Monitor
-
„Með gæsahúð á hnjánum“
-
Bítlanna leitað í London
-
Gróðurhús í útrás til Kína
-
Álfunum þykir hunangið best
-
„Evrópa þarfnast vaxtar“
-
Logi: Þurfum að vinna til að halda okkur uppi
-
Guðmann: Pétur í „tittlingavinnunni“




































