Fjölmenni á vaxtarræktarmóti

Keppendur í módelfitness. Myndin er tekin af vefnum fitness.is.
Keppendur í módelfitness. Myndin er tekin af vefnum fitness.is.

Talið er að um eitt þúsund áhorfendur hafi fylgst með bikarmóti í vaxtarrækt og fitness  í Háskólabíói í gær. Keppendur voru alls 109 talsins.

Gyða Dröfn Sveinbjörnsdóttir varð í gær sigurvegari í módelfitness eftir harða keppni en alls kepptu 57 keppendur í módelfitness í fjórum flokkum.

Í heildarkeppni kvenna í fitness sigraði Jóna Lovísa Jónsdóttir en hún keppti í flokki 35 ára og eldri. Í karlaflokki sigraði Elmar Þór Diego.

Þau Magnús Bess Júlíusson og Hilda Elísabet Guttormsdóttir voru heildarsigurvegarar í vaxtarrækt.

Fitness.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert