Karlmaðurinn, sem var handtekinn á föstudagskvöldið í tengslum við skotárás í austurborginni, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til næsta föstudags.
Þetta kom fram í hádegisfréttum RÚV. Talið er að tveimur skotum hafi verið hleypt af en engan sakaði. Árásarmennirnir voru grímuklæddir og skutu á bíl manns sem komst undan þeim. Lögreglan leitar tveggja manna vegna árásarinnar.