Óafturkræfar skemmdir á náttúrunni

Utanvegaakstur er vaxandi vandamál. Myndin tengist ekki fréttinni beint.
Utanvegaakstur er vaxandi vandamál. Myndin tengist ekki fréttinni beint. Rax / Ragnar Axelsson

„Þetta eru ljótustu myndir af svona utanvegaakstri sem ég hef lengi séð, ég er eiginlega orðlaus satt að segja," segir Páll Ásgeir Ásgeirsson leiðsögumaður og fjölmiðlamaður, um nýleg náttúruspjöll sem má sjá á leiðinni inn í Dalakofa, nánar tiltekið á leiðinni milli Hungurfitjar og Laufafells.

Starfmenn Útivistar voru þar á ferð um síðustu helgi til að vinna í skálanum og var brugðið þegar þeir sáu samfelld för eftir utanvegaakstur á um 6 km kafla.

„Myndirnar bera það með sér að menn hafi ekið við hliðina á veginum þannig að það erfitt að sjá hvaða erfiðu kringumstæðum hafi knúið menn til þess að haga sér með þessum hætti og því virkar þetta sem meiri glæpur. Tilgangsleysið og brotaviljinn er alveg augljós," segir Páll Ásgeir.

Fræðsla og yfirveguð og opinber umfjöllun er besta ráðið gegn athæfum af þessu tagi að mati Páls Ásgeirs. „Það verður með einhverjum hætti að gera fólki ljóst að skemmdir eins og þessar eru óafturkræfar. Svo þarf að gera löggjafanum kleift að lögsækja þá sem eru staðnir að svona afbrotum. Það hefur ekki gengið vel að fá menn sakfellda fyrir utanvegaakstur jafnvel þó að þeir séu staðnir að verki vegna þess að skilgreiningu á vegakerfi hálendisins er áfátt."

Myndir af utanvegaakstrinum má sjá hér

Páll Ásgeir Ásgeirsson
Páll Ásgeir Ásgeirsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert