Stefnt er að því að Bláfjallasvæðið verði opnað fyrir skíðafólki um helgina. Mikill kuldi hefur verið að undanförnu og þó ekki hafi mikið snjóað er gott færi í brekkunum að sögn Einars Bjarnasonar, rekstrarstjóra á svæðinu.
„Snjór sem kemur í frosti er alltaf toppurinn í tilverunni, hvort sem það er á Íslandi eða annars staðar," sagði Einar.