Þrefaldur næst í Víkingalottói

Enginn var með allar tölurnar réttar í Víkingalottóinu að þessu sinni og verður potturinn því þrefaldur næsta miðvikudag. Stálheppinn áskrifandi var með allar fimm tölurnar í réttri röð í Jókernum og fær hann tvær milljónir í vinning.

Fjórir voru með fjórar réttar tölur og fær hver 100.000 kr. Miðarnir voru keyptir í Tvistinum í Vestmannaeyjum, N1, Reykjanesbæ, á síðu Íslenskrar getspár og einn er í áskrift.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka