Árstíðarbundna fjölgun beinbrota sem tilkomin eru vegna hálkuslysa mátti merkja í ár eins og þau fyrri.
En þó svo veðurfar á landinu væri með kaldara móti í desember og einnig óvenjusnjóþungt víða um land komu ekki upp fleiri tilvik beinbrota vegna hálkuslysa en undanfarin ár, samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum.
Veðrið undanfarið hefur gert gangandi og akandi vegfarendum lífið leitt, en snjólag var yfir Akureyrarbæ allan mánuðinn og 29 daga í Reykjavík – sem er yfir meðallagi á báðum stöðum.
Eldra fólk virðist undirbúa sig vel þegar vetrarhörkur skella á og lendir ekki frekar í óhöppum vegna hálku en yngra fólk. Stefán Björn Karlsson, lærlingur hjá Skóaranum í Kringlunni, segir að sala á mannbroddum hafi aukist mikið eftir því sem liðið hefur á veturinn. „Við höfum verið að selja mannbrodda síðan í lok nóvember og þeir hafa rokið út síðustu vikur og sérstaklega síðustu daga,“ segir Stefán Björn.