Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, sem er í opinberri heimsókn í Rúmeníu, lagði í viðræðum við þarlenda ráðamenn fram hugmyndir um að styrkir úr Þróunarsjóði EFTA, sem Ísland á aðild að, yrðu notaðir til að hefja jarðhitaverkefni í Rúmeníu.
Þá ræddi Össur stöðu aðildarumsóknar Íslendinga að Evrópusambandinu, samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu. Er þetta í fyrsta skipti sem íslenskur utanríkisráðherra fer í opinbera heimsókn til Rúmeníu.
Utanríkisráðuneytið segir að Teodor Baconschi, utanríkisráðherra Rúmeníu, hafi á fundi með Össuri lýst miklum áhuga á því að nýta styrki úr Þróunarsjóði EFTA til jarðhitavæðingar en íslenskir aðilar, Orkustofnun og Mannvit, hafi lýst áhuga á að koma að slíkum verkefnum og eru í viðræðum við rúmensk stjórnvöld um það.
Ráðherrarnir voru á einu máli um að auka mætti viðskipti ríkjanna og ræddu hugmyndir um það til að mynda með því að halda þing sprotafyrirtækja. Utanríkisráðherra Rúmeníu lýsti áhuga á að læra af því hvernig Íslendingar hefðu byggt upp velferðarkerfi sitt og hvernig þjóðin hefði náð því að komast í fremstu röð í jafnréttisbaráttunni.
Að sögn utanríkisráðuneytisins skýrði Össur ganginn í aðildarviðræðum Íslands og Evrópusambandsins og hefðu Rúmenar heitið fullum og eindregnum stuðningi við umsókn Íslands. Þeir hefðu skilning á því að einstakir þættir viðræðnanna, eins og um sjávarútvegsmál, skiptu sköpum þegar kæmi að því að íslenska þjóðin þyrfti að taka afstöðu til samnings.
Össur átti sérstakan fund með Leonard Orban, Evrópumálaráðherra Rúmeníu, sem fer með málefni Evrópusjóða, til að hvetja Rúmena til að setja meiri kraft í jarðhitaverkefnin. Þá átti Össur fund með Petru Filip, starfandi forseta rúmenska þingsins, sem einnig hefur mikinn áhuga á að hvetja til hitaveituverkefna í vesturhluta landsins.