Sigurður Árni verður í kjöri

Sigurður Árni Þórðarson. stækka

Sigurður Árni Þórðarson. mbl.is

Sigurður Árni Þórðarson, prestur í Neskirkju, hefur ákveðið að gefa kost á sér í embætti biskups Íslands. 

Í tilkynningu sem Sigurður sendi frá sér segir að framtíð kirkjunnar sé honum efst í huga, hann vill breyta henni og efla. Hann segir að kirkjan eigi að vera framsækin, frjálslynd, lífleg og öllum opin. Kirkjan eigi að heyra gagnrýni, gera upp og vera traustsins verð.

„Biskup þjóðkirkjunnar á að beita sér fyrir að kirkjan sé öruggt og gott samfélag. Biskup á að vera fús til samtals, vera virkur þátttakandi í menningarþróun, veita andlega leiðsögn, vera prestur prestanna og þjóðarprédikari. Til að sinna þessu hlutverki þarf að létta af biskupsembættinu hlutverki framkvæmdastjóra kirkjunnar,“ segir Sigurður.

Hann segir að þjóðkirkja eigi að efla jafnrétti og virkni allra aldurshópa í kirkjunni og að biskup Íslands eigi að beita sér fyrir jafnri stöðu kvenna og karla.

Til að kirkjan eigi sér framtíð þarf æskulýðsstarf að vera forgangsstarf þjóðkirkjunnar,“ segir Sigurður. „Þjóðkirkjan er á krossgötum. Til safnaða hennar, starfsfólks og stofnana er kallað hátt og snjallt af Guði og mönnum. Ég býð mig fram til þjónustu.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Opið hús var hjá samreknu slökkviliði Þingeyjarsveitar og Skútustaðahrepps í tilefni nýrrar slökkvistöðvar.

Ný slökkvistöð tekin í notkun

Í gær, 23:44 Ný slökkvistöð var formlega tekin í notkun í dag hjá samreknu slökkviliði Þingeyjarsveitar og Skútustaðahrepps. Af tilefni af því var opið hús að Kvíghólsmýri á Laugum, þar sem stöðin er staðsett. Meira »
Sorp baggað og breytt í metangas á haugunum í Álfsnesi.

Ýmislegt að gerjast í metaninu

Í gær, 23:05 Ýmsar áætlanir eru uppi um aukna framleiðslu metans fyrir bíla, en bílum sem ganga fyrir metani hefur fjölgað verulega á stuttum tíma. Eftir er að fjármagna framkvæmdir en gangi eftir áætlanir um metanframleiðslu í Eyjafirði, Borgarfirði og Reykjavík verður mun meira framboð af metani eftir 1-2 ár. Meira »

Auðvelt að koma sér áfram á netinu

Þorsteinn Sindri Baldvinsson er 18 ára en hefur æft trommuleik í 7 ár.
Í gær, 22:05 „Það eru margir tónlistarmenn á Youtube að gera góða hluti. Þetta er miklu meira en bara kattavídjó og fólk að detta, það eru margir virkilega hæfileikaríkir að koma sér áfram þarna," segir Þorsteinn Sindri Baldvinsson, trommari, sem hefur vakið athygli á Youtube fyrir trommuleik og ætlar sér langt. Meira »

Bæjarstjórinn í Garði rekinn

Gerðaskóli í Garði - mynd úr safni
Í gær, 21:06 Ásmundur Friðriksson, bæjarstjóri í Garði, var rekinn frá störfum á aukabæjarstjórnarfundi nú í kvöld. Að sögn Ásmundar snýst uppsögnin og þær breytingar sem urðu á meirihlutanum í bæjarstjórn um helgina um málefni skólans. Hann frétti fyrst af uppsögninni á vefmiðlum í dag. Meira »

Brettaíþróttin blómstrar sem aldrei fyrr

Sól og blíða er í Bláfjöllum í kvöld og nægur snjór fyrir brettakappa.
Í gær, 19:53 „Það er frábært veður og gott færi og örugglega eitthvað rúmlega 100 manns í brekkunum," segir Linda Björk Sumarliðadóttir hjá Brettafélagi Íslands, en félagið stendur í kvöld fyrir Sumarglensi í Bláfjöllum. Brettaíþróttin er orðin mjög sterk hér á landi og margir sem vilja nota færið meðan hægt er. Meira »

Erfið staða framhaldsskóla

Jón Már Héðinsson skólameistari Menntaskólans á Akureyri ásamt nokkrum nýstúdentum
Í gær, 22:01 Framhaldsskólum á Íslandi er ætlað að mennta hvern nemenda fyrir um 400 þúsund króna lægri fjárhæð en bæði yngri og efri skólastig. Þetta segir Jón Már Héðinsson skólameistari Menntaskólans á Akureyri í viðtali við vikublaðið Akureyri. Meira »

„Með gæsahúð á hnjánum“ myndskeið

160512 korkrakkar
Í gær, 20:03 „Þetta var svo flott að ég var með gæsahúð á hnjánum.“ Þetta sagði tónlistarmaðurinn Halldór Gunnar Pálsson sem ferðast nú um landið og safnar röddum í lag sitt Ísland eftir að hafa tekið upp í Lágafellsskóla í dag þar sem krakkarnir lærðu lagið á nokkrum mínútum og sungu hástöfum stuttu síðar. Meira »

Ekklar lifa skemur en kvæntir karlar

Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint
Í gær, 19:40 Dánartíðni karla, sem misst hafa maka sína, er tvöfalt hærri en meðal giftra karla. Ekklar veigra sér við að leita sér stuðnings fagfólks og 20% þeirra segjast nota áfengi í óhófi til að deyfa sorgina. Samfélagið þarf að endurskoða viðhorf sitt til sorgar og syrgjenda. Meira »

Fengu verðlaun frá Heimili og skóla

Frá verðlaunaafhendingunni í dag
Í gær, 19:19 Foreldraverðlaun Heimilis og skóla - landssamtaka foreldra voru afhent í dag í sautjánda skiptið.  Meira »

Gæslan við eftirlit

Hafískort af vef Landhelgisgæslunnar
Í gær, 18:52 TF-SIF flugvél Landhelgisgæslunnar fór í gær í eftirlits- og ísflug um V- og N-djúp auk þess sem flogið var um Reykjaneshrygg þar sem nú eru 36 skip að veiðum. Meira »

Stálheppinn Finni í lottóinu

Í gær, 19:06 Einn stálheppinn Finni var með allar tölurnar réttar í Víkingalottóinu og hlýtur hann rúmar 99 milljónir í vinning.   Meira »

Lentu í snjóflóði í Glerárdal

Í gær, 18:28 Lögreglunni á Akureyri barst tilkynning í dag um að snjóflóð hefði fallið í suðurhlíðum Kerlingar á Glerárdal ofan Akureyrar og hefðu tveir vélsleðamenn lent í flóðinu og væru afdrif þeirra óljós. Skömmu síðar kom í ljós að þeir höfðu komist óslasaðir úr flóðinu af sjálfsdáðum. Meira »

Arkitektúr.is átti vinningstillöguna

Tölvuteikning af vinningstillögu að byggingu fyrir fyrir Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum
Í gær, 18:04 Arkitektastofan Arkitektúr.is varð hlutskörpust í hönnunarsamkeppni um byggingu fyrir alþjóðlega tungumálamiðstöð Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum á Hugvísindasviði Háskóla Íslands. Meira »

Rétt skrapp frá og bílnum stolið á meðan

Í gær, 17:41 Maður sem rétt skaust inn á vinnustað sinn í austurhluta Reykjavíkur í gær og skildi bifreið sína eftir í gangi fyrir utan varð fyrir því óláni að bifreiðinni var stolið. Meira »

Hafna ávirðingum ráðuneytisins

Sjávarútvegsfrumvörpin eru til umræðu í atvinnuveganefnd
Í gær, 17:15 Deloitte hafnar öllum þeim ávirðingum sem sjávarútvegsráðuneytið setur fram í umsögn sinni um skýrslu Deloitte sem send var til atvinnuveganefndar 23. apríl sl. Deloitte harmar aðför sjávarútvegsráðherra á hendur fyrirtækisins á fundum og opinberum vettvangi í tengslum við sjávarútvegsfrumvörpin. Meira »

Umferðarslys á Hafnarfjarðarvegi

Í gær, 17:47 Tveir voru fluttir á slysadeild eftir umferðarslys á Hafnarfjarðarvegi fyrir skömmu. Töluverðar tafir hafa verið á umferð vegna slyssins sem varð skammt frá Arnarneshæðinni. Meira »

Mótmælt á Austurvelli

Á milli 40 og 50 manns taka þátt í mótmælum á Austurvelli þar sem barið ...
Í gær, 17:33 Um fimmtíu manns eru á Austurvelli og taka þátt í tunnuslætti hóps sem mótmælir aðgerðarleysi stjórnvalda gagnvart heimilum í landinu. Meira »

Kolbrún formaður Barnaheilla

Kolbrún Baldursdóttir.
Í gær, 17:07 Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur var kosinn formaður stjórnar Barnaheilla – Save the Children á Íslandi á aðalfundi samtakanna í vikunni. Tap varð af rekstri samtakanna á árinu 2011. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Hvítt rimlarúm á hjólum til sölu!
Fallegt hvítt rimlarúm á hjólum til sölu. Hægt að lækka aðra hliðina niður og 2 ...
Vortilboð á öllum garðverkum trjáfellingar frá 10 þúsund
Vortilboð: Trjáfellingar frá 10 þús., ódýrar trjáklippingar, fagleg þjónusta og ...
Sparaðu í ískaupum - www.isvelar.is
Gömlu góðu ísvélarnar eru nú aftur fáanlegar í endurbættri útfærslu. Fyrstu véla...
Mercedes Benz 4matic 1999
Akstur 238 þ.km.,Næsta skoðun 2013, Bensín, 3.200 cc., Innspýting, 222 hö., 1.71...
 
Til sölu
Til sölu
Til sölu utanhússklæðni...
Þjónustustjóri
Stjórnunarstörf
Þjónustustjóri R...
15244 fossheiði 54 ríkiskaup
Til sölu
Tilboð óskast í ...
Ræsting á húsnæði háskóla íslands
Tilboð - útboð
Útboð á ræs...