Foreldrar reiðir skólayfirvöldum í borginni
Mikil reiði braust út meðal foreldra barna í Hvassaleitisskóla á kynningarfundi í kvöld um sameiningu í nýjan Háaleitisskóla, þegar tilkynnt var að vegna framkvæmda í Breiðagerðisskóla myndi miðstigið þar flytjast í Hvassaleitisskóla næsta skólaár. Segir talsmaður foreldra þá ekki hafa verið hafða með í ráðum eða starfsmenn Hvassaleitisskóla.
Á fundinum var verið að kynna vinnu stýrihóps sem unnið hefur að sameiningu Hvassaleitisskóla og Álftamýrarskóla í nýjan Háaleitisskóla, sem fékk það nafn formlega um áramótin. Formaður stýrihópsins kynnti þá vinnu, fulltrúar frá skóla- og frístundasviði borgarinnar og nýr skólastjóri Háaleitisskóla, Brynhildur Ólafsdóttir, sem áður stýrði Álftamýrarskóla.
„Við höfum verið að frétta það á skotspónum síðan í desember að hingað ætti að koma hluti Breiðagerðisskóla inn í Hvassaleitisskóla næsta haust. Síðan kom það bara fram í umræðum hjá formanni stýrihópsins að það væri búið að ákveða þetta. Þá sprakk salurinn,“ segir Sigríður Sigurjónsdóttir, ritari í stjórn foreldrafélags Hvassaleitisskóla, sem sat fundinn.
Í þeim skóla sérstaklega hefur verið mikil óánægja með sameininguna við Álftamýrarskóla og segir Sigríður þetta mál hafa bæst við ofan á allt hitt sem á hefur gengið. Hún segir starfsfólk Hvassaleitisskóla ekki heldur hafa vitað um þennan flutning úr Breiðagerðisskóla fyrr en á þessum fundi í kvöld.
„Framkoma í okkar garð forkastanleg“
„Það virðast ekki vera nein takmörk fyrir hvað er hægt að ganga langt gagnvart börnunum okkar, í raun forkastanlegt hvernig komið hefur verið fram við okkur og að búið sé að taka þessa ákvörðun án þess að foreldrum sé kynnt málið. Það er ekki nóg með að það sé búið að sameina skólann í andstöðu við foreldra heldur bætist þetta mál líka við,“ segir Sigríður og bætir við að ærið verkefni bíði nýs sameinaðs skóla, líkt og fram hafi komið í máli skólastjórans.
Hún dregur jafnframt í efa hvort löglega hafi verið staðið að þeirri ákvörðun að flytja miðstig Breiðagerðisskóla í Hvassaleitisskóla. Málið hafi t.d. ekki verið borið undir skólaráð. Það hljóti að teljast meiriháttar breyting á skólastarfi að meira en tvöfalda fjölda nemenda í skólanum.
„Þetta er skóli barnanna okkar og þeirra lóð. Það er ekki hægt að nota okkur sem einhverja stoppistöð eða afleysingu fyrir hina og þessa,“ segir Sigríður og telur að þótt unglingastigið í Hvassaleitisskóla fari úr skólanum næsta haust geti orðið erfitt að bæta við allt að tíu bekkjardeildum úr Breiðagerðisskóla.





































