Gagnrýna náið samband við Glitni

Almenni lífeyrissjóðurinn er einn af fáum íslenskum lífeyrissjóðum þar sem sjóðfélagar kjósa stjórn. stækka

Almenni lífeyrissjóðurinn er einn af fáum íslenskum lífeyrissjóðum þar sem sjóðfélagar kjósa stjórn. mbl.is/hag

Hlutabréfaeign Almenna lífeyrissjóðsins var fyrir hrun áberandi mest í Glitni eða allt að 77% af hlutabréfasafninu í árslok 2006 og lengi vel var stór hluti af eignum  lífeyrissjóðsins ávaxtaður í verðbréfasjóðum Glitnis. Með rekstrarsamningi var Glitni falin stjórn og rekstur sjóðsins í mörg ár og eru þessi tengsl gagnrýnd í skýrslu úttektarnefndar á vegum Landssamtaka lífeyrissjóða sem kynnt var í gær.

Áætlað tap Almenna lífeyrissjóðsins á árunum 2008–2010, er 29,7 milljarðar króna. Í ársreikningum sjóðsins eru gjaldmiðlavarnarsamningar við bankana hins vegar gerðir upp sem þýðir m.ö.o. að ársreikningur sjóðsins sýnir verstu mögulegu stöðu á samningunum gagnvart bönkunum. Samkvæmt því yrði tap sjóðsins 33,2 milljarðar króna. Sjóðurinn er nú fimmti stærsti lífeyrissjóður landsins.

Almenni lífeyrissjóðurinn fól Íslandsbanka, síðar Glitni rekstur sjóðsins.

Almenni lífeyrissjóðurinn fól Íslandsbanka, síðar Glitni rekstur sjóðsins. mbl.is/Árni Sæberg

Þetta kemur fram í skýrslu nefndar sem rannsakaði fjárfestingar lífeyrissjóðanna og birt var í gær.

Í skýrslunni er mikið fjallað um tengsl sjóðsins við Glitni en Almenni lífeyrissjóðurinn og sjóðir þeir sem sameinuðust í honum, höfðu um tuttugu ára skeið rekstrarsamning við Íslandsbanka/Glitni sem fól í sér að bankinn sá alfarið um framkvæmdastjórn og daglegan rekstur sjóðsins. „Ástæða er til að hyggja aðeins að svona nánu sambandi
banka og lífeyrissjóðs,“ segir í skýrslunni.

77% hlutabréfasafnsins í Glitni

Á árunum fyrir hrun var stór hluti af eignum Almenna lífeyrissjóðsins ávaxtaður í verðbréfasjóðum Glitnis. Þannig voru 29.134 milljónir króna af eignum sjóðsins vistaðar í Glitnissjóðum í lok árs 2006 en það svaraði til 35% af hreinni eign sjóðsins til greiðslu lífeyris.

Þá var hlutabréfaeign sjóðsins áberandi mest í Glitni eða allt að 77% af hlutabréfasafninu í árslok 2006.

Almenni lífeyrissjóðurinn tók þátt í skuldabréfa útboði bankans í mars árið 2008.  Um var að ræða útboð á svokölluðum „víkjandi og breytanlegum skuldabréfum“.

Skuldabréfaútboðið var að því leytinu sérstakt, að skuldabréfin voru án gjalddaga. Almenni lífeyrissjóðurinn keypti skuldabréf fyrir 1.620 milljónir króna sem töpuðust að fullu strax við fall bankanna.

Keypt í Glitni - selt í Kaupþingi

Í upphafi árs 2006 átti sjóðurinn 157.048 þúsund hluti í Glitni að verðmæti 2.717 milljónum króna. Sjóðurinn dró síðan verulega úr nafnverðseign sinni í Glitni á árinu 2007 og seldi hlutabréf með verulegum hagnaði. Eftir söluna stóð nafnverðið í 80.924 þúsund hlutum.

Eignahlutur sjóðsins í Glitni var síðan óbreyttur allt fram á síðasta ársfjórðung 2008 en þá voru keyptir 40.886 þúsund hlutir á genginu 4,27.

Athygli vekur að á sama tíma og þessi síðustu hlutabréfakaup í Glitni eiga sér stað er sjóðurinn að selja hlutabréf í Kaupþingi fyrir nánast sömu upphæð eða 170 milljónir króna.

Tap sjóðsins á hlutabréfaeign sinni í Glitni ofangreint tímabil hefur numið a.m.k. 1.155 milljónir króna.

Það þarf því engan að undra að mestar afskriftir sjóðsins á árunum eftir hrun voru hjá Glitni eða samtals 3.355 mkr.

Breytt eignarhald á banka hafði áhrif

Í skýrslunni er vakin sérstök athygli á því að eign Almenna í FL Group jókst á árinu 2007 úr 676 milljónum króna í ársbyrjun uppí 2,2 milljarða í árslok sem var hækkun um 227,9%. Aukningin í FL Group átti sér eingöngu stað í gegnum verðbréfasjóði Glitnis.

Sama má segja um Baug Group. Eign Almenna í Baugi á árinu 2007 fór úr 601 milljón króna í ársbyrjun upp í 1.809 milljónir í árslok sem var aukning um 200%.

„Skýringuna á þessari miklu eignaaukningu Almenna lífeyrissjóðsins í FL Group hf. og Baugi Group hf. gæti verið að finna í breyttu eignarhaldi á Glitni á árinu 2007 en í apríl það ár náði FL Group hf. yfirráðum í bankanum,“ segir í skýrslunni.

Engin umræða um eignatengsl

Skýrsluhöfundar segja ljóst af viðtölum við stjórnarmenn Almenna lífeyrissjóðsins að lítil eða engin umræða skapaðist innan stjórnar um stjórnenda- og eignatengsl í íslensku atvinnulífi. Töldu stjórnarmenn að það hlyti að vera hlutverk lífeyris- og fagfjárfestasviðs bankans að fylgja fyrirmælum laga og reglugerða þar um.

Starfsfólk þessarar deildar bankans virðist heldur ekki hafa gert sér fulla grein fyrir því hvaða hætta stafaði af miklum lánveitingum bankans til margra helstu eigenda hans þegar kom fram á árið 2007, þar á meðal úr sjóðum sem lífeyrissjóðurinn átti í stóran hlut.

Tengsl sjóðsins við verðbréfasjóði Glitnis banka og í lokin eftirlitsleysi um stjórn þessara sjóða, hvort sem því mátti viðkoma eða ekki, urðu sjóðnum kostnaðarsöm. Hins vegar
segja skýrsluhöfundar ekki unnt að ætla að stjórnendur Almenna lífeyrissjóðsins frekar en stjórnendur annarra sjóða hafi átt að gera sér grein fyrir hversu höllum fæti bankarnir stóðu.

Sjóðsfélagar kjósa stjórn

Almenni lífeyrissjóðurinn er einn af fáum íslenskum lífeyrissjóðum sem eru þannig upp byggðir að sjóðfélagar kjósa stjórn sjóðsins á ársfundi. Hann var stofnaður árið 1990. Margir aðrir sjóðir hafa síðan sameinast Almenna lífeyrissjóðnum og nú er hann opinn öllum en er jafnframt starfsgreinasjóður arkitekta, lækna, leiðsögumanna, hljómlistarmanna og tæknifræðinga.

Það var ekki fyrr en í maí 2009 að sjóðurinn hóf sjálfstæðan rekstur með eigin starfsmönnum. Fram að þeim tíma hafði sjóðurinn haft eigin stjórn þar sem var a.m.k.
einn fulltrúi bankans en allir starfsmenn voru starfsmenn Íslandsbanka/Glitnis.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Opið hús var hjá samreknu slökkviliði Þingeyjarsveitar og Skútustaðahrepps í tilefni nýrrar slökkvistöðvar.

Ný slökkvistöð tekin í notkun

Í gær, 23:44 Ný slökkvistöð var formlega tekin í notkun í dag hjá samreknu slökkviliði Þingeyjarsveitar og Skútustaðahrepps. Af tilefni af því var opið hús að Kvíghólsmýri á Laugum, þar sem stöðin er staðsett. Meira »
Sorp baggað og breytt í metangas á haugunum í Álfsnesi.

Ýmislegt að gerjast í metaninu

Í gær, 23:05 Ýmsar áætlanir eru uppi um aukna framleiðslu metans fyrir bíla, en bílum sem ganga fyrir metani hefur fjölgað verulega á stuttum tíma. Eftir er að fjármagna framkvæmdir en gangi eftir áætlanir um metanframleiðslu í Eyjafirði, Borgarfirði og Reykjavík verður mun meira framboð af metani eftir 1-2 ár. Meira »

Auðvelt að koma sér áfram á netinu

Þorsteinn Sindri Baldvinsson er 18 ára en hefur æft trommuleik í 7 ár.
Í gær, 22:05 „Það eru margir tónlistarmenn á Youtube að gera góða hluti. Þetta er miklu meira en bara kattavídjó og fólk að detta, það eru margir virkilega hæfileikaríkir að koma sér áfram þarna," segir Þorsteinn Sindri Baldvinsson, trommari, sem hefur vakið athygli á Youtube fyrir trommuleik og ætlar sér langt. Meira »

Bæjarstjórinn í Garði rekinn

Gerðaskóli í Garði - mynd úr safni
Í gær, 21:06 Ásmundur Friðriksson, bæjarstjóri í Garði, var rekinn frá störfum á aukabæjarstjórnarfundi nú í kvöld. Að sögn Ásmundar snýst uppsögnin og þær breytingar sem urðu á meirihlutanum í bæjarstjórn um helgina um málefni skólans. Hann frétti fyrst af uppsögninni á vefmiðlum í dag. Meira »

Brettaíþróttin blómstrar sem aldrei fyrr

Sól og blíða er í Bláfjöllum í kvöld og nægur snjór fyrir brettakappa.
Í gær, 19:53 „Það er frábært veður og gott færi og örugglega eitthvað rúmlega 100 manns í brekkunum," segir Linda Björk Sumarliðadóttir hjá Brettafélagi Íslands, en félagið stendur í kvöld fyrir Sumarglensi í Bláfjöllum. Brettaíþróttin er orðin mjög sterk hér á landi og margir sem vilja nota færið meðan hægt er. Meira »

Erfið staða framhaldsskóla

Jón Már Héðinsson skólameistari Menntaskólans á Akureyri ásamt nokkrum nýstúdentum
Í gær, 22:01 Framhaldsskólum á Íslandi er ætlað að mennta hvern nemenda fyrir um 400 þúsund króna lægri fjárhæð en bæði yngri og efri skólastig. Þetta segir Jón Már Héðinsson skólameistari Menntaskólans á Akureyri í viðtali við vikublaðið Akureyri. Meira »

„Með gæsahúð á hnjánum“ myndskeið

160512 korkrakkar
Í gær, 20:03 „Þetta var svo flott að ég var með gæsahúð á hnjánum.“ Þetta sagði tónlistarmaðurinn Halldór Gunnar Pálsson sem ferðast nú um landið og safnar röddum í lag sitt Ísland eftir að hafa tekið upp í Lágafellsskóla í dag þar sem krakkarnir lærðu lagið á nokkrum mínútum og sungu hástöfum stuttu síðar. Meira »

Ekklar lifa skemur en kvæntir karlar

Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint
Í gær, 19:40 Dánartíðni karla, sem misst hafa maka sína, er tvöfalt hærri en meðal giftra karla. Ekklar veigra sér við að leita sér stuðnings fagfólks og 20% þeirra segjast nota áfengi í óhófi til að deyfa sorgina. Samfélagið þarf að endurskoða viðhorf sitt til sorgar og syrgjenda. Meira »

Fengu verðlaun frá Heimili og skóla

Frá verðlaunaafhendingunni í dag
Í gær, 19:19 Foreldraverðlaun Heimilis og skóla - landssamtaka foreldra voru afhent í dag í sautjánda skiptið.  Meira »

Gæslan við eftirlit

Hafískort af vef Landhelgisgæslunnar
Í gær, 18:52 TF-SIF flugvél Landhelgisgæslunnar fór í gær í eftirlits- og ísflug um V- og N-djúp auk þess sem flogið var um Reykjaneshrygg þar sem nú eru 36 skip að veiðum. Meira »

Stálheppinn Finni í lottóinu

Í gær, 19:06 Einn stálheppinn Finni var með allar tölurnar réttar í Víkingalottóinu og hlýtur hann rúmar 99 milljónir í vinning.   Meira »

Lentu í snjóflóði í Glerárdal

Í gær, 18:28 Lögreglunni á Akureyri barst tilkynning í dag um að snjóflóð hefði fallið í suðurhlíðum Kerlingar á Glerárdal ofan Akureyrar og hefðu tveir vélsleðamenn lent í flóðinu og væru afdrif þeirra óljós. Skömmu síðar kom í ljós að þeir höfðu komist óslasaðir úr flóðinu af sjálfsdáðum. Meira »

Arkitektúr.is átti vinningstillöguna

Tölvuteikning af vinningstillögu að byggingu fyrir fyrir Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum
Í gær, 18:04 Arkitektastofan Arkitektúr.is varð hlutskörpust í hönnunarsamkeppni um byggingu fyrir alþjóðlega tungumálamiðstöð Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum á Hugvísindasviði Háskóla Íslands. Meira »

Rétt skrapp frá og bílnum stolið á meðan

Í gær, 17:41 Maður sem rétt skaust inn á vinnustað sinn í austurhluta Reykjavíkur í gær og skildi bifreið sína eftir í gangi fyrir utan varð fyrir því óláni að bifreiðinni var stolið. Meira »

Hafna ávirðingum ráðuneytisins

Sjávarútvegsfrumvörpin eru til umræðu í atvinnuveganefnd
Í gær, 17:15 Deloitte hafnar öllum þeim ávirðingum sem sjávarútvegsráðuneytið setur fram í umsögn sinni um skýrslu Deloitte sem send var til atvinnuveganefndar 23. apríl sl. Deloitte harmar aðför sjávarútvegsráðherra á hendur fyrirtækisins á fundum og opinberum vettvangi í tengslum við sjávarútvegsfrumvörpin. Meira »

Umferðarslys á Hafnarfjarðarvegi

Í gær, 17:47 Tveir voru fluttir á slysadeild eftir umferðarslys á Hafnarfjarðarvegi fyrir skömmu. Töluverðar tafir hafa verið á umferð vegna slyssins sem varð skammt frá Arnarneshæðinni. Meira »

Mótmælt á Austurvelli

Á milli 40 og 50 manns taka þátt í mótmælum á Austurvelli þar sem barið ...
Í gær, 17:33 Um fimmtíu manns eru á Austurvelli og taka þátt í tunnuslætti hóps sem mótmælir aðgerðarleysi stjórnvalda gagnvart heimilum í landinu. Meira »

Kolbrún formaður Barnaheilla

Kolbrún Baldursdóttir.
Í gær, 17:07 Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur var kosinn formaður stjórnar Barnaheilla – Save the Children á Íslandi á aðalfundi samtakanna í vikunni. Tap varð af rekstri samtakanna á árinu 2011. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Castiglione
Ítölsk harmonika til sölu. 3ja kóra 7/3 skiptingar. Gott hljóðfæri. Verð kr. 19...
BMW 730 Díesel gott staðgreiðsluverð eða skipti
BMW 730 díesel, svartur,verð 3.6 skipti ath.ekinn 298.þús. allur yfirfarinn ný d...
Nissan Micra
Nissan Micra´98, ek.160þús, 5dyra, beinskiptur, ný yfirfarinn og góður bíll, á ...
Góð skrifstofuhæð við Ármúla til leigu.
540 ferm að flatarmáli, má skipta í tvær einingar. 13 herbergi og almennt vinnur...
 
I.o.o.f. ob.1,petrus [1935178[ lf.á ísaf
Félagsstarf
I.O.O.F. Ob.1,Petrus [1935178[ Lf. ...
Kennarar
Grunn-/framhaldsskóla
Hafralækjarskóli og Litlulaugaskóli í Þ...
Aðalfundur reykjavíkurdeildar
Fundir - mannfagnaðir
Aðalfundur Reykjavíkurdeilda...
Forstöðumaður eignaumsýslu
Stjórnunarstörf
Forstöðumaður eignaumsýslu Hjúkru...