Mega ekki fá nýja púða strax
Þær konur, sem eru með PIP-púða í brjóstum sínum, geta ekki fengið nýja púða um leið og PIP-púðarnir verða fjarlægðir Reuters
Þær konur, sem eru með PIP-púða í brjóstum sínum, geta ekki fengið nýja púða um leið og PIP-púðarnir verða fjarlægðir Ekki er talið óhætt að setja strax nýja púða þar sem þeir leku gætu hafa ert vefi í líkama kvennanna. Þetta segir sviðsstjóri hjá Landlæknisembættinu.
„Fyrstu tölur frá Krabbameinsfélaginu, sem sér um ómskoðun þessara kvenna, benda til þess að margar kvennanna virðist vera með leka púða,“ segir Anna Björg Aradóttir, sviðsstjóri eftirlits og gæða hjá Landlæknisembættinu.
„Læknisfræðilegt mat bendir til þess að þessir leku púðar erti meira en aðrir og því er alls ekki ráðlegt að setja nýja púða strax. Konurnar verða að bíða á milli aðgerða, ef þær kjósa að fá nýja púða.“
Anna Björg segir að ekki sé hægt að segja til um hversu langur sá tími gæti verið, það sé persónubundið, væntanlega hafi púðarnir lekið mismikið og konurnar misviðkvæmar fyrir ertingu. „Það sést í rauninni ekki fyrr en í aðgerðinni, þegar púðarnir verða fjarlægðir, hvernig þetta lítur út.“
Anna Björg segir að hugsanlega gætu einhverjar konur, sem nú bera PIP-púða, ekki hafa orðið fyrir neinni ertingu og gætu þá jafnvel fengið nýja púða í sömu aðgerð og hinir verða fjarlægðir í.
„En það verður ekki gert á Landspítalanum. Tilboð ríkisins hljómar upp á að láta fjarlægja púðana þar, ekkert annað. Konur geta auðvitað látið fjarlægja púðana á eigin kostnað hjá lýtalækni og ef hans mat er að setja megi nýja púða í brjóstin í sömu aðgerð, þá er það hans læknisfræðilega mat og á faglega ábyrgð viðkomandi læknis.“
Innlent »
- Nammigrísir gripnir glóðvolgir
- EA fjárfestingarfélag þarf ekki að greiða sekt
- Nauðgunardómur staðfestur
- Þjóðin taki af skarið
- Tólf stigin duga ekki Íslandi til sigurs
- Hráefni gætu hækkað við inngöngu í ESB
- Stýrivaxtahækkun „algjört kjaftshögg“
- Minni losun gróðurhúsalofttegunda frá áliðnaði
- Myndbandsupptaka dugði ekki til
- Ræddu umsóknir um áheyrnaraðild
- Vilji ekkert leggja á sig
- Stuðningur við Íslendinga í fangelsum erlendis
- Verk Leifs vígt fljótlega
- Listaverk í snjónum á Seyðisfirði
- Nýir skólastjórar við þrjá grunnskóla
- 56% jákvæð gagnvart áliðnaði
- Margir óku of hratt í Kópavogi
-
Gróðurhús í útrás til Kína
- List án landamæra fékk mannréttindaverðlaun
- Skína smástjörnur fengu hæsta styrkinn
- Harma hættulegar lyklakippur
- Fjögur ríki skiluðu athugasemdum
- Minningartónleikar um Kristján Eldjárn
- Gaf blóð í 100. skiptið
- Leiguverð hækkaði milli mánaða
- Þarf að afhenda upplýsingar um konurnar
- Fjölluðu um ábendingar Ríkisendurskoðunar
- Hjólaleiðir í vinnuna kortlagðar
- Fíkniefnasali handtekinn
- 1.000 hjólreiðamenn fengu sér kaffi
- Hjólreiðar æ vinsælli ferðamáti
- Kannabisræktun í Garðabæ
- Vinningstillagan kynnt í byrjun júní
- Illa undirbúin og stórgölluð
- Þarf að greiða 500 milljónir
- Verðmunur á orku- og veituþjónustu
- Fjórtán ára með fíkniefni
- Fjarskiptabúnaðurinn veldur ekki skaða
- Stóraukin skuldsetning Reykjanesbæjar
- Forsetinn farinn til Tékklands
-
Álfunum þykir hunangið best
- Rannsókn á stunguárás langt komin
- Telja gróflega á sér brotið
- Vetrarfærð norðanlands og austan
- Örvar Guðni: Útreikningurinn ofmetur auðlindarentuna
- Íslendingur hlýtur heiðursverðlaun í Þýskalandi
- Íshellir myndast í Gígjökli
- Villtist inn á lokaðan veg
- Gömul ösp barkarflett
- Mannsins enn leitað
- Á annað hundrað skjálftar hafa orðið við flekaskilin
- Ekki á formannsbuxunum
- Víða laus embætti
- Manns leitað við Dettifoss
- Ók á ljósastaur
- Nýjasta skipið selt úr landi?
- „Færi valdið til fólksins“
- Biðlistar lengjast mikið á Grensás
- Launaskrið virðist vera á vinnumarkaði
- „Alls staðar rok“
- Kvótafrumvarp
- Forsetakosningar 2012
- Umsókn um aðild að ESB
- Dómur Hæstaréttar um gengislán
- Kjaraviðræður
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 7. febrúar 2012, Innlent Allir brjóstapúðar fjarlægðir
- Þriðjudagur, 7. febrúar 2012, Innlent Læknar ekki sammála
- Föstudagur, 3. febrúar 2012, Innlent PIP-fyllingar verði fjarlægðar
- Fimmtudagur, 22. desember 2011, Innlent Ráðlagt að ræða við lækni
- Miðvikudagur, 8. febrúar 2012, Innlent Fá ekki nýja púða í sömu aðgerð
-
Gabríel á forsíðu Monitor
-
„Með gæsahúð á hnjánum“
-
Bítlanna leitað í London
-
Gróðurhús í útrás til Kína
-
Álfunum þykir hunangið best
-
„Evrópa þarfnast vaxtar“
-
Logi: Þurfum að vinna til að halda okkur uppi
-
Guðmann: Pétur í „tittlingavinnunni“





































