Varað við byggingu þekkingarseturs í flóðfarvegi Skaftár á Kirkjubæjarklaustri

Kirkjubæjarklaustur.
Kirkjubæjarklaustur. www.mats.is

Landgræðslustjóri varar eindregið við því að þekkingarsetri á Kirkjubæjarklaustri verði valinn staður í farvegi Skaftár.

Telur hann að lítið þurfi að hækka í ánni til þess að hún flæmist yfir bakkavörn og yfir fyrirhugað byggingarsvæði.

Skaftárhreppur og stofnanir ríkisins undirbúa byggingu þekkingarseturs. Það á að hýsa gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs, stjórnsýslu sveitarfélagsins, Kirkjubæjarstofu, nýtt Erró-setur og ýmsar fleiri stofnanir. Skaftárhreppur á ekkert byggingarland á Kirkjubæjarklaustri en fékk lóð í nágrenni félagsheimilisins sem hreppsnefnd telur ákjósanlega.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert