Hjartað í tónlistinni en höfuðið í læknisfræðinni

Magni Ásgeirsson söng lag Sveins Rúnar, Hugarró, af mikilli innlifun. stækka

Magni Ásgeirsson söng lag Sveins Rúnar, Hugarró, af mikilli innlifun. mbl.isEggert Jóhannesson

Síðustu vikurnar hefur lagahöfundurinn Sveinn Rúnar Sigurðsson, sem átti tvö lög í úrslitakeppni Söngvakeppni sjónvarpsins í gærkvöldi, starfað við lækningar á Heilsugæslunni í Árbæ á daginn og sinnt undirbúningi Evróvisjón á kvöldin.

Sveinn Rúnar á heima í Ungverjalandi en hefur dvalið hér á landi undanfarnar vikur. Lögin sem Sveinn Rúnar átti í keppninni í gær voru Hugarró í flutningi Magna Ásgeirssonar og Stund með þér í flutningi Rósu Birgittu Ísfeld. Að auki átt Sveinn Rúnar eitt lag til viðbótar í undankeppninni, Leyndarmál í flutningi Írisar Hólm.

„Ég vildi nota tímann á meðan ég væri hérna á Íslandi vel og gera eitthvað gagnlegt á daginn,“ segir Sveinn um vinnuna á Heilsugæslustöðinni í Árbæ en þar segir hann starfa frábært fólk. „Hjartað slær fyrir tónlistina en höfuðið nota ég fyrir læknisfræðina - og ég vil halda höfðinu vel við,“ segir Sveinn Rúnar og hlær.

Rósa Birgitta Ísfeld söng lag Sveins Rúnars Stund með þér.

Rósa Birgitta Ísfeld söng lag Sveins Rúnars Stund með þér. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sveinn Rúnar er lærður klassískur píanóleikari en undanfarin ár hefur popptónlistin einnig verið honum hugleikin. Þá rekur hann hugbúnaðarfyrirtæki í Úkraínu, heimalandi konu sinnar Maríu Vygovska. Hann dvelur því mikið þar í landi og segist tala rússnesku reiprennandi.

Sér ákveðið mynstur

Hann hefur átt tíu lög í undakeppnum Evróvisjón hér heima undanfarin ár og hefur unnið keppnina í tvígang, fyrst árið 2004 með Heaven í flutningi Jónsa og síðar árið 2007 með Valentine Lost í flutningi Eiríks Haukssonar.

„Ég er farinn að sjá ákveðið mynstur,“ segir Sveinn Rúnar um þátttöku sína. „Árið 2003 tapaði ég, árið 2004 vann ég, árið 2006 tapaði ég en árið 2007 vann ég. Í ár tapa ég en það þýðir bara að ég kem dýrvitlaus til keppni að ári!“

Sveinn Rúnar Sigurðsson lagahöfundur.

Sveinn Rúnar Sigurðsson lagahöfundur. mbl.is/Guðmundur Rúnar

Sveinn Rúnar viðurkennir að hann kunni illa að tapa en segir að í gær hafi öll lögin sjö verið mjög frambærileg og samkeppnin sérstaklega hörð.

„Ég er mjög ánægður með frammistöðu míns fólks, Magna og Rósu, en allir keppendur voru að standa sig mjög vel í gær. Ég óska vinkonu minni Gretu Salóme hjartanlega til hamingju með verðskuldaðan sigur og það er alveg á hreinu að við erum nú komin í klappliðið hennar fyrir keppnina úti.“

Úkraína óslípaður demantur

Sveinn Rúnar hefur búið í Austur-Evrópu meira og minna frá árinu 2004. Hann segist hafa heillast af þessum heimshluta endalega þegar hann kom til Kiev í Úkraínu árið 2005, einmitt í tengslum við Evróvisjón. „Úkraína er einstakt land, eins og óslípaður demantur. Þar er mögnuð náttúrufegurð og þar býr gott fólk.“

Strax á fimmtudag er förinni heitið til Kænugarðs. Hugbúnaðarfyrirtæki Sveins Rúnars er í miklum vexti og nú þarfnast það allrar athygli hans. Að minnsta kosti þar til nýtt Evróvisjón-lag kviknar í kolli hans. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Opið hús var hjá samreknu slökkviliði Þingeyjarsveitar og Skútustaðahrepps í tilefni nýrrar slökkvistöðvar.

Ný slökkvistöð tekin í notkun

Í gær, 23:44 Ný slökkvistöð var formlega tekin í notkun í dag hjá samreknu slökkviliði Þingeyjarsveitar og Skútustaðahrepps. Af tilefni af því var opið hús að Kvíghólsmýri á Laugum, þar sem stöðin er staðsett. Meira »
Sorp baggað og breytt í metangas á haugunum í Álfsnesi.

Ýmislegt að gerjast í metaninu

Í gær, 23:05 Ýmsar áætlanir eru uppi um aukna framleiðslu metans fyrir bíla, en bílum sem ganga fyrir metani hefur fjölgað verulega á stuttum tíma. Eftir er að fjármagna framkvæmdir en gangi eftir áætlanir um metanframleiðslu í Eyjafirði, Borgarfirði og Reykjavík verður mun meira framboð af metani eftir 1-2 ár. Meira »

Auðvelt að koma sér áfram á netinu

Þorsteinn Sindri Baldvinsson er 18 ára en hefur æft trommuleik í 7 ár.
Í gær, 22:05 „Það eru margir tónlistarmenn á Youtube að gera góða hluti. Þetta er miklu meira en bara kattavídjó og fólk að detta, það eru margir virkilega hæfileikaríkir að koma sér áfram þarna," segir Þorsteinn Sindri Baldvinsson, trommari, sem hefur vakið athygli á Youtube fyrir trommuleik og ætlar sér langt. Meira »

Bæjarstjórinn í Garði rekinn

Gerðaskóli í Garði - mynd úr safni
Í gær, 21:06 Ásmundur Friðriksson, bæjarstjóri í Garði, var rekinn frá störfum á aukabæjarstjórnarfundi nú í kvöld. Að sögn Ásmundar snýst uppsögnin og þær breytingar sem urðu á meirihlutanum í bæjarstjórn um helgina um málefni skólans. Hann frétti fyrst af uppsögninni á vefmiðlum í dag. Meira »

Brettaíþróttin blómstrar sem aldrei fyrr

Sól og blíða er í Bláfjöllum í kvöld og nægur snjór fyrir brettakappa.
Í gær, 19:53 „Það er frábært veður og gott færi og örugglega eitthvað rúmlega 100 manns í brekkunum," segir Linda Björk Sumarliðadóttir hjá Brettafélagi Íslands, en félagið stendur í kvöld fyrir Sumarglensi í Bláfjöllum. Brettaíþróttin er orðin mjög sterk hér á landi og margir sem vilja nota færið meðan hægt er. Meira »

Erfið staða framhaldsskóla

Jón Már Héðinsson skólameistari Menntaskólans á Akureyri ásamt nokkrum nýstúdentum
Í gær, 22:01 Framhaldsskólum á Íslandi er ætlað að mennta hvern nemenda fyrir um 400 þúsund króna lægri fjárhæð en bæði yngri og efri skólastig. Þetta segir Jón Már Héðinsson skólameistari Menntaskólans á Akureyri í viðtali við vikublaðið Akureyri. Meira »

„Með gæsahúð á hnjánum“ myndskeið

160512 korkrakkar
Í gær, 20:03 „Þetta var svo flott að ég var með gæsahúð á hnjánum.“ Þetta sagði tónlistarmaðurinn Halldór Gunnar Pálsson sem ferðast nú um landið og safnar röddum í lag sitt Ísland eftir að hafa tekið upp í Lágafellsskóla í dag þar sem krakkarnir lærðu lagið á nokkrum mínútum og sungu hástöfum stuttu síðar. Meira »

Ekklar lifa skemur en kvæntir karlar

Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint
Í gær, 19:40 Dánartíðni karla, sem misst hafa maka sína, er tvöfalt hærri en meðal giftra karla. Ekklar veigra sér við að leita sér stuðnings fagfólks og 20% þeirra segjast nota áfengi í óhófi til að deyfa sorgina. Samfélagið þarf að endurskoða viðhorf sitt til sorgar og syrgjenda. Meira »

Fengu verðlaun frá Heimili og skóla

Frá verðlaunaafhendingunni í dag
Í gær, 19:19 Foreldraverðlaun Heimilis og skóla - landssamtaka foreldra voru afhent í dag í sautjánda skiptið.  Meira »

Gæslan við eftirlit

Hafískort af vef Landhelgisgæslunnar
Í gær, 18:52 TF-SIF flugvél Landhelgisgæslunnar fór í gær í eftirlits- og ísflug um V- og N-djúp auk þess sem flogið var um Reykjaneshrygg þar sem nú eru 36 skip að veiðum. Meira »

Stálheppinn Finni í lottóinu

Í gær, 19:06 Einn stálheppinn Finni var með allar tölurnar réttar í Víkingalottóinu og hlýtur hann rúmar 99 milljónir í vinning.   Meira »

Lentu í snjóflóði í Glerárdal

Í gær, 18:28 Lögreglunni á Akureyri barst tilkynning í dag um að snjóflóð hefði fallið í suðurhlíðum Kerlingar á Glerárdal ofan Akureyrar og hefðu tveir vélsleðamenn lent í flóðinu og væru afdrif þeirra óljós. Skömmu síðar kom í ljós að þeir höfðu komist óslasaðir úr flóðinu af sjálfsdáðum. Meira »

Arkitektúr.is átti vinningstillöguna

Tölvuteikning af vinningstillögu að byggingu fyrir fyrir Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum
Í gær, 18:04 Arkitektastofan Arkitektúr.is varð hlutskörpust í hönnunarsamkeppni um byggingu fyrir alþjóðlega tungumálamiðstöð Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum á Hugvísindasviði Háskóla Íslands. Meira »

Rétt skrapp frá og bílnum stolið á meðan

Í gær, 17:41 Maður sem rétt skaust inn á vinnustað sinn í austurhluta Reykjavíkur í gær og skildi bifreið sína eftir í gangi fyrir utan varð fyrir því óláni að bifreiðinni var stolið. Meira »

Hafna ávirðingum ráðuneytisins

Sjávarútvegsfrumvörpin eru til umræðu í atvinnuveganefnd
Í gær, 17:15 Deloitte hafnar öllum þeim ávirðingum sem sjávarútvegsráðuneytið setur fram í umsögn sinni um skýrslu Deloitte sem send var til atvinnuveganefndar 23. apríl sl. Deloitte harmar aðför sjávarútvegsráðherra á hendur fyrirtækisins á fundum og opinberum vettvangi í tengslum við sjávarútvegsfrumvörpin. Meira »

Umferðarslys á Hafnarfjarðarvegi

Í gær, 17:47 Tveir voru fluttir á slysadeild eftir umferðarslys á Hafnarfjarðarvegi fyrir skömmu. Töluverðar tafir hafa verið á umferð vegna slyssins sem varð skammt frá Arnarneshæðinni. Meira »

Mótmælt á Austurvelli

Á milli 40 og 50 manns taka þátt í mótmælum á Austurvelli þar sem barið ...
Í gær, 17:33 Um fimmtíu manns eru á Austurvelli og taka þátt í tunnuslætti hóps sem mótmælir aðgerðarleysi stjórnvalda gagnvart heimilum í landinu. Meira »

Kolbrún formaður Barnaheilla

Kolbrún Baldursdóttir.
Í gær, 17:07 Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur var kosinn formaður stjórnar Barnaheilla – Save the Children á Íslandi á aðalfundi samtakanna í vikunni. Tap varð af rekstri samtakanna á árinu 2011. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
HARÐVIÐUR TIL HÚSBYGGINGA
Harðviður til húsabygginga  Sjá nánar á...
Gisting Akureyri - gista.is - s. 694-4314
Notalegar frístundaíbúðir 2ja og 3ja herb. á góðum stað. Uppábúin rúm og þráðlau...
Hamraborg útsýnisskrifstofuhúsn. 4. hæð
Til leigu gott skrifst.húsnæði ca 25 fm. Laust strax. Lyftuhús. Næg bílastæði. S...
Satín blússa kvk í tískulitnum Stór stærð til sölu
Frank Walder blússa/skyrta kvk til sölu, ný og ónotuð, fínleg, tískuliturinn í á...
 
Leikskólastjóri
Önnur störf
Skeiða- og Gnúpverjahreppur o o o...
Starfsmaður óskastí matvælafyrirtæki
Matvælaiðnaður
Starfsmaður óskast í m...
Atvinna
Önnur störf
Ráðningarþjónusta Tæknistjóri Star...
I.o.o.f. ob.1,petrus [1935178[ lf.á ísaf
Félagsstarf
I.O.O.F. Ob.1,Petrus [1935178[ Lf. ...