Hitamet fyrir austan

Það sem af er febrúar er meðalhiti á Akureyri 6,4 …
Það sem af er febrúar er meðalhiti á Akureyri 6,4 stigum yfir meðallag. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Hlýtt hefur verið víða á landinu það sem af er febrúar. Á öðrum tímanum í fyrrinótt fór hitinn í 14,8 stig á Teigarhorni við Berufjörð, sem er nýtt hitamet í febrúar á þessari fornfrægu veðurstöð, að því er Sigurður Þór Guðjónsson skrifar í bloggi sínu (nimbus.blog.is).

Þá fór hitinn í 14,1 stig á Fáskrúðsfirði og 13,6 stig í Grundarfirði. Veðurstofan spáir kólnandi veðri þegar líður á daginn og frosti um allt land síðar í vikunni.

Meðalhitinn í Reykjavík fyrstu 14 daga febrúar er 3,4 stig sem er 3,8 stigum yfir meðallagi þegar horft er til síðustu 60 ára. Meðalhiti á Akureyri sömu daga er 4,0 stig og 6,4 stigum fyrir ofan meðallag þar í bæ.

Spáð er kólnandi veðri í bili og eftir er að sjá hversu langt meðalhitinn hrapar á næstu dögum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert