Náttúrugripasafnið fari í Perluna

Fimm félagasamtök á sviði náttúru- og umhverfisverndar og fagfélög kennara hafa sent stjórn Orkuveitu Reykjavíkur og mennta- og menningarmálaráðherra áskorun vegna hugmynda um nýtingu Perlunnar undir starfsemi Náttúruminjasafns Íslands.

Að áskorununum standa Hið íslenska náttúrufræðifélag, Landvernd, Samlíf - Samtök líffræðikennara, Félag náttúrufræðikennara á grunnskólastigi og Félag raungreinakennara.

Samtökin hvetja ráðherra og stjórn OR „eindregið til þess að gaumgæfa vel hugmyndir um nýtingu Perlunnar undir starfsemi Náttúruminjasafns Íslands. Í því skyni láti hún gera úttekt á því hversu vel húsnæðið á Öskjuhlíðinni henti slíkri starfsemi og hvaða leiðir skulu farnar svo eignarhald þess færist til ríkisins. Náttúruminjasafn Íslands er lögum samkvæmt eitt þriggja höfuðsafna þjóðarinnar og á að gegna lykilhlutverki í kynningu og fræðslu um náttúru Íslands. Safnið hefur verið á hrakhólum og búið við óviðunandi aðstæður svo áratugum skiptir. Nú er svo komið að það á engan samastað fyrir sýningastarfsemi sína og safnmunir eru geymdir ofan í kössum. Veglegt höfuðsafn í náttúrufræðum er stolt hverrar velstæðrar þjóðar og dýrmætur fróðleiksbrunnur fyrir þegna og gesti viðkomandi lands. Í ljósi þess að Íslendingar byggja atvinnu sína og líf á náttúru landsins í mjög ríkum mæli, auk þess sem langflestir erlendir ferðamenn sækja landið heim vegna náttúrunnar, skiptir öllu máli að bjóða upp á vandað höfuðsafn um náttúru landsins sem vel er í sveit sett og sómi er að.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert