Börn og unglingar í óhamingjugildru

stækka

mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Morgunblaðið Hólmfríður Gísladóttir, holmfridur@mbl.is

Það er ekki nóg að tækifærin séu til, einstaklingurinn þarf að hafa hvata til þess að sjá þá möguleika sem hann hefur á að nýta sér þau,“ segir dr. Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í félagsráðgjöf og formaður stjórnar RBF, Rannsóknarstofnunnar í barna- og fjölskylduvernd við félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands. Rannsóknarstofnunin stendur í dag fyrir málþingi í samstarfi við Lionshreyfinguna á Íslandi, undir yfirskriftinni „Framtíð barna: Forvarnir 1, 2 og 3!,“ en þar verður fjallað um ýmis málefni er varða börn og fjölskylduvernd, m.a. það sem Sigrún hefur kosið að kalla „óhamingjugildruna“.

„Í hverju velferðarsamfélagi, sama hversu vel það er statt, eru ákveðnir hópar barna sem eiga undir högg að sækja og eru í áhættuhópum,“ útskýrir Sigrún. „Þau fæðast inn í aðstæður þar sem foreldrar þeirra hafa ekki bolmagn eða getu til að veita þeim stuðning og efla þau og þau standast ekki samkeppnina í skólanum, eru með bjagaða sjálfsmynd og liggja þar af leiðandi vel við höggi,“ segir hún.

Ekki teknir út fyrir hópinn

Sigrún mun á málþinginu kynna verkefnið Læsi á lífiðen það miðar að því að ná til þessara barna og ungmenna, t.d. með fræðslu og samtalshópum. „Oft eru þetta einstaklingar sem búa yfir seiglu og hafa styrk sem þó hefur ekki tekist að leysa úr læðingi. En með tiltölulega litlu átaki; að það sé einhver sem trúir á þau, að þeim bjóðist þátttaka í verkefnum, fræðslu eða annarri virkni, þá vaknar þessi kraftur í þeim,“ segir Sigrún. Ef ekkert sé að gert sé hins vegar hætt við því að þau samsami sig við og erfi félagslegar aðstæður foreldra sinna.

Sigrún segir mikilvægt að í þessari vinnu séu þessir einstaklingar ekki teknir út fyrir hópinn. „Þvert á móti förum við út með almenna fræðslu eða verkefni og vekjum þau þannig til meðvitundar. Þá kannski vaknar áhugi og þau verða sýnileg,“ segir hún. Þessi nálgun gangi út á að unnið sé út frá styrk einstaklingsins en ekki veikleikum. „Og það er alltaf betra en að setja merkimiða á fólk fyrirfram þannig að það skilgreini sig út frá einhverjum sjúkdómi eða vangetu,“ segir hún.

Sem dæmi um fræðslu eða verkefni sem geta hjálpað ungmennum að verða „læs á lífið“ nefnir Sigrún fjölskyldufræðslu í framhaldsskólum, þar sem ungu fólki er kennt hvað felst í því að stofna fjölskyldu, verða foreldri og axla ábyrgð. Hún leggur áherslu á að í þessari vinnu sé samvinna lykilatriði, sérstaklega þegar margir aðilar koma að málefnum eins einstaklings en þetta sé nokkuð sem rík áhersla sé lögð á í námi í félagsráðgjöf, bæði hvað varðar þverfaglegt samstarf en einnig samstarf milli ólíkra kerfa og stofnana.

Samvinna lykilatriði

„Svokölluð samsmíð er sú hugmyndafræði sem er nú ráðandi í allri velferðarþjónustu en hún gengur út á að fagfólk komi saman úr ólíkum áttum og stilli saman strengi sína varðandi málefni einstaklingsins. Þetta er lýðræðisleg nálgun og í staðinn fyrir að einhver einn taki ákvörðun fyrir Jón Jónsson þá er hann hafður með í vinnunni, efnt er til samstarfsfunda og byggt upp prógramm þannig að hann fái stuðning úr mörgum áttum. Þetta tekur meiri tíma og kostar meiri peninga en við teljum að þessi leið skili meiri ánægju og árangri,“ segir Sigrún.

Málþingið er haldið í Öskju í Háskóla Íslands og hefst kl. 16.30.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Lendi í vanda á Lakavegi

09:56 Björgunarsveitinn Kyndill á Kirkjubæjarklaustri aðstoðaði ökumann á Lakavegi í síðustu viku. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli var um erlendan ferðamann að ræða. Hann hafði ekið framhjá lokunum á veginum sem er ekki búið að opna fyrir umferð. Meira »
Íslenskar getraunir.

Hækkar um eina krónu

09:09 Íslenskar getraunir hafa ákveðið að hækka röð hverrar raðar í getraunum um 1 krónu, úr 17 krónum í 18 krónur. Tekur hækkunin gildi í dag. Meira »

Krapi og éljagangur á Fjarðarheiði

08:47 Aðalleiðir eru nú greiðfærar um allt land, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Á Austurlandi er þó krapi og éljagangur á Fjarðarheiði. Hellisheiði eystri er enn ófær. Meira »

Ganga þarf á varasjóð

Á fjórða tug fjölskyldna eru nú á biðlista hjá Íslenskri ættleiðingu eftir undirbúningsnámskeiði.
06:44 Stjórn Íslenskrar ættleiðingar hefur sent innanríkisráðuneyti tilkynningu um að ganga þurfi á varasjóð félagsins og að þær ráðstafanir kunni að leiða til þess að ekki verði hægt að ljúka málum, sem þegar eru til meðferðar. Meira »

Hrapaði þegar bandið slitnaði

Um 30 til 40 metrar eru niður að sjó frá syllunni þar sem maðurinn lenti.
05:30 „Það er vel hægt að síga í einföldu bandi en hann ákvað að vera öruggur og síga í tvöföldu bandi. Hann var kominn svolítið áleiðis niður 12-15 metra stál í stapanum þegar bandið slitnaði og féll í frjálsu falli, á að giska sex til átta metra og lenti milli tveggja steina á syllu.“ Meira »

Sumarið loksins komið

Sprækir krakkar í sundi.
07:30 Sólþyrstir Íslendingar kepptust við að njóta veðurblíðunnar sem ríkti um allt land yfir helgina.  Meira »

Grunaðir um innbrot í bifreiðar

Lögregla.
06:21 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af þremur ungum mönnum í gærkvöld, sem grunaðir eru um innbrot í bifreiðar í Breiðholti. Drengirnir eru á aldrinum 15-18 ára. Þá var annar maður kærður fyrir fíkniefnabrot. Meira »

Veiðigjöldin myndu rýra eign ríkisins

05:30 „Ef sjávarútvegsfrumvörpin verða samþykkt í óbreyttri mynd hefði það mikil áhrif á Landsbankann. Þau draga úr virði bankans og þar með verðmæti eignarhluta ríkisins.“ Meira »

Atkvæðakaup og liður í að framlengja líf stjórnvalda

Halldór Halldórsson.
05:30 „Það er verið að kaupa stuðning. Það á að framlengja líf ríkisstjórnarinnar.“   Meira »

Mesta ofbeit í yfir tuttugu ár

Hross hafa oft ekki nóg að éta þar sem jarðir hafa orðið fyrir ofbeit.
05:30 Andrés Arnalds, fagmálastjóri hjá Landgræðslu ríkisins, segir að beitarhagar fyrir hross séu víða of mikið bitnir. Ástandið nú sé jafnvel verra en fyrir rúmum tuttugu árum þegar land fór víða illa vegna ofbeitar. Meira »

Verðirnir létu höggin dynja

Í einu fangelsanna voru að meðaltali tveir fangar myrtir á dag í gengjastríðum.
05:30 Íslendingur sem afplánaði refsingu í S-Ameríku lýsir í viðtali við Morgunblaðið hörmulegum aðstæðum í fangelsunum sem honum var haldið í. Ofbeldi var mikið, óþrifnaðurinn yfirþyrmandi og maturinn af mjög skornum skammti og afar ólystugur. Meira »

Rýna í stjórnlagaráðstillögurnar

05:30 Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hefur fengið hóp lögfræðinga til þess að fara yfir tillögur stjórnlagaráðs með tilliti til lögfræðilegra atriða. Hópinn skipa Hafsteinn Þór Hauksson, Ragnhildur Helgadóttir, Oddný Mjöll Arnardóttir, Páll Þórhallsson og Guðmundur Alfreðsson. Meira »

Léttskýjað norðan- og vestantil

04:38 Hæg austan- og norðaustanátt, 3-8 m/s, verður á landinu í dag en 10-18 sekúndumetrar við suður- og suðausturströndina. Léttskýjað norðan- og vestantil á landinu, mistur á Suðurlandi, en skýjað og rigning suðaustan- og austanlands. Meira »

Verða kynnt fyrir drottningunni

Nælan sem Kristján hannaði fyrir Elísabetu Englandsdrottningu
Í gær, 22:50 Gullsmiðurinn Kristján Eyjólfsson og eiginkona hans, Ivonne, verða kynnt fyrir Elísabetu Englandsdrottningu á morgun er drottningin fær afhenta demantsnælu sem Kristján hannaði fyrir hana í tilefni af sextíu ára krýningarafmæli hennar, sem kallast demantsafmæli. Íslenskt víravirki er í nælunni. Meira »

Vonast til að samstarfið gangi upp

Elfa Dögg Þórðardóttir
Í gær, 21:37 Elfa Dögg Þórðardóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Árborg, segist vonast til þess að samstarfið muni ganga upp og segist sátt við að niðurstaðan hafi orðið sú að hún starfi áfram með flokknum í bæjarstjórn. Meira »

Bílvelta í Blönduhlíð

Í gær, 23:17 Bíll valt í Blönduhlíð á móts við Höskuldsstaði í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Blönduósi voru þrjár ungar stúlkur í bílnum. Ein stúlknanna var flutt með sjúkrabíl til Akureyrar en hinar tvær voru sendar til skoðunar á Sauðárkróki og er líðan þeirra góð eftir atvikum. Meira »

Slasaðist alvarlega í Aðalvík

Frá björgunaraðgerðum í Aðalvík í dag
Í gær, 21:55 Karlmaður sem féll í klettabelti í Aðalvík á Hornströndum í dag hefur verið fluttur á gjörgæsludeild en hann er alvarlega slasaður, samkvæmt upplýsingum frá lækni. Er maðurinn með alvarleg beinbrot og fer í aðgerð síðar í kvöld. Meira »

Húsið jafnvel ónýtt

Frá eldsvoðanum á Seyðisfirði í kvöld
Í gær, 21:04 Slökkvistarfi er lokið á veitingastaðnum Kaffi Láru á Seyðisfirði, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Húsið er mjög illa farið og jafnvel ónýtt en um gamalt timburhús er að ræða. Einn maður var inni í húsinu þegar eldurinn kviknaði en hann komst út af sjálfsdáðum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Ljósakróna
Til sölu ljósakróna frá Home Art . Mjög vel með farin. kr. 8000,- Upplýsingar í...
KEBEK BLACKLION
Kebek Blacklion sumardekk 175/65 R 14 kr. 10.700. 195/65 R 15 kr. 12.500. 205/55...
Fleetwood Americana Santa Fe 10 fet 2007
Vel með farið,með fortjaldi,sólarsellu,sjónvarpsloftneti,CD með I-pod input,2 ga...
9 FM VANDAÐ BJÁLKAHÚS
9 fm vandað bjálkahús úr þéttum viði - fæst með eða án þakefnis. Verð kr. 374.90...
 
Stykkishólmur vatnshús við skipavíkurbry
Tilboð - útboð
Útboð Stykkishó...
Verslun til sölu
Til sölu
Verslun til sölu Verslun í Mosfel...
Til leigu í lágmúla

Til leigu er 75 m² skrifstofuhúsnæði í...
Framhald uppboðs
Nauðungarsala
Uppboð Framhald uppboðs á...