Gagnrýnir skamman fyrirvara
„Ég gerði mér vonir um að Alþingi færi rækilega yfir þessar tillögur og skrifaði síðan um þær álit. Ég gerði hins vegar alveg eins ráð fyrir því að hópurinn yrði kallaður saman til skrafs og ráðagerða,“ segir Örn Bárður Jónsson, prestur og einn fulltrúa í stjórnlagaráði, um þá ákvörðun þingsins í gær að vísa frumvarpi stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá aftur til ráðsins til umfjöllunar á fundi sem fram á að fara 8. - 11. mars næstkomandi.
Örn segist gera sér grein fyrir því að Alþingi glími við mörg verkefni en að það komi honum á óvart að ekki skuli liggja fyrir efnisleg niðurstaða af hálfu þingsins um frumvarpið á þeim sjö mánuðum sem liðið hafi frá því að stjórnlagaráð lauk störfum sínum. Hann minnir á í því sambandi að ráðið hafi lokið við frumvarpið og náð samkomulagi um það á tæpum fjórum mánuðum.
„Ég geri ekki ráð fyrir að komast á fundinn vegna annarra skyldustarfa og anna, þetta er ekki mikill fyrirvari, en vonandi komast þá hin og geta komið sínum sjónarmiðum á framfæri. En það er auðvitað komið að því að Alþingi sýni nú dug og klári þetta mál og í raun og veru þykir mér málflutningur þeirra sem eru á móti þessu frumvarpi eða stjórnarskrárbreytingum yfir höfuð séu fulltrúar ekki bara íhaldssemi heldur afturhalds,“ segir Örn Bárður.
Hann gefur lítið fyrir umræðuhefðina á Alþingi og segir hana ekki skila uppbyggilegum niðurstöðum. „Mér finnst Alþingi í dag ekki sýna þjóðinni þá virðingu og fordæmi sem það ætti að gera og í raun og veru er komið að því að það þarf að hreinsa út úr þessu stjórnkerfi bara algerlega. Mér finnst að það þurfi bara að sópa til. Það þarf ekki bara nýtt fólk heldur ný vinnubrögð og nýjan hugsunarhátt. Ný viðhorf og alveg nýjan anda.“
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, lýsti því yfir á Alþingi fyrr í dag að hún vonaði að sem flestir sem sæti áttu í stjórnlagaráði sæju sér fært að mæta á fund ráðsins sem boðaður hefur verið í næsta mánuði, en auk Arnar Bárðar hafa bæði Salvör Nordal, sem gegndi formennsku í stjórnlagaráði, og Pawel Bartoszek, sem sæti átti í ráðinu, lýst því yfir að þau muni ekki sitja fundinn.
Innlent »
- Með skrifstofu í ferðatöskunni
- Eldsvoði á Seyðisfirði
- Gengur vel hjá Íslendingum í Bakú
- Húsnæðiskerfinu umbylt
- Íslendingar vöknuðu við skjálftann
- Þyrlan á leið til Reykjavíkur
- Ráðist á heimasíðu Landgræðslunnar
- Eldri borgarar sýndu handverk sitt
- Björgunarmenn komnir á slysstað
- Nýtt blað um áhrif aðildar að ESB á landbúnað
- Hrapaði við eggjatöku
- Margir á grásleppu
- Sambland ösku- og sandfoks
- Hannes klárar söfnun í dag
- Hátækniherskip í Reykjavíkurhöfn
- Valhúsaskóli fór með sigur af hólmi
- Segja Eyþór njóta fulls trausts
- „Semja látlaust við aðra flokka“
- Hent fram af svölum á fjórðu hæð
- Með alvarlega áverka eftir líkamsárás
- Birgitta og aðrir aðgerðasinnar lýsa yfir sigri
- Ísfisktogarinn Frosti til sýnis á Grenivík
- Hefur ekki áhyggjur af skoðanakönnunum
-
Á leið á alþjóðlegt Legómót
- Íslensk bók rædd í Westminster
- Leitað að ferðalöngum á Austurlandi
- Leki kom að vélarvana skipi
- Ökumenn í vímu og til vandræða
- Kýldi mann fyrir framan lögreglu
- Á gjörgæslu eftir líkamsárás
Laugardagur, 19.5.2012
- 20-30 júdógöllum stolið
- Fá heimild til að vinna með erfðabreytt bygg
- Heldur fljótlega til veiða á ný
- Stikun leiða vörn gegn utanvegaakstri
-
Átta nýir árgangar kjósa forseta
- Potturinn fimmfaldur næst
- Segja flóttamenn misnota okkur
- Mannréttindi og öryggismál rædd
- WSJ: Vestmannaeyjar og hrunið
- Fráleitt að meirihlutinn sé óstarfhæfur
- Endurkjörinn formaður Blindrafélagsins
- Efast um traust á oddvitanum
- Banaslys í Skorradal
- Ævintýraleg ferð yfir Grænland
- Óbreyttur meirihluti í Árborg
- Hærra verð á hlaupum
- Endaði á tónleikum með Andreu
- Bílvelta í Skorradal
- Talað í rúmar 35 klukkustundir
- Konan fundin sem leitað var að
- Kostnaðarsöm skoðanakönnun sem skili litlu
- Ferðakona á Rauðasandi óskar aðstoðar
- LÍÚ segist vilja samvinnu um lausn
- Sambærileg atvik hjá eins vélum
- Kristbjörg komin í höfn í Heimaey
- Sigmund Jóhannsson látinn
- Réttindalausir ökumenn í vímu
- Ferðamaður tekinn við eignaspjöll
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 28. mars 2011, Innlent 17 hafa þegið sæti í stjórnlagaráði
- Miðvikudagur, 30. mars 2011, Innlent Íris Lind óákveðin
- Fimmtudagur, 23. febrúar 2012, Innlent Gerir alvarlegar athugasemdir
- Laugardagur, 26. febrúar 2011, Innlent Nokkrir í stjórnlagahópnum óákveðnir
- Miðvikudagur, 30. mars 2011, Innlent Stjórnlagaráð kemur saman 6. apríl
-
Þórður: Frammúr okkar vonum
-
Garðar: Ljúft að skora
-
Magnaður hringmyrkvi
-
Kristján: Frammistaðan verðskuldaði stig
-
Rúnar: Erfitt að spila við Valsmenn
-
Ólafur: Fengum færi til að setja mark
-
Ólafur Páll: FH skorar nú oftast
-
Serbía stefnir áfram á ESB-aðild


































