Yfirheyrslu yfir Geir H. Haarde lokið

Geir H. Haarde í Þjóðmenningarhúsinu í dag.
Geir H. Haarde í Þjóðmenningarhúsinu í dag. mbl.is/Kristinn

Yfirheyrslum yfir Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, fyrir Landsdómi er lokið.

Í fyrramálið kl. 10 kemur dómurinn aftur saman. Þá kemur Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, fyrir hann. Í framhaldi af því kemur Arnór Sighvatsson, sem átti sæti í samstarfsnefnd um fjármálastöðugleika, fyrir dóminn.

Eftir hádegið verður svo skýrsla tekin af Davíð Oddssyni, fyrrverandi seðlabankastjóra.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert