Forritað í kappi við tímann

Nóg um að vera í forritunarkeppni framhaldsskólanna.
Nóg um að vera í forritunarkeppni framhaldsskólanna.

Um 120 forritarar framtíðarinnar taka nú þátt í Forritunarkeppni framhaldsskólanna á vegum Háskólans í Reykjavík í samvinnu við Nýherja.

44 lið hvaðanæva af landinu keppa í dag sem er metþátttaka. Forritunarkeppnin er opin öllum nemendum í mennta- og framhaldsskólum sem hafa áhuga á forritun, hönnun og tölvum.

Forritunarkeppni framhaldsskólanna er skipt niður í þrjár deildir; í Leonard Hofstadter-deildinni leysa keppendur mörg smá verkefni og eitt stórt verkefni þar sem reynir á tæknilega færni, hugsanlega með notkun grafísks notendaviðmóts, gagnagrunns og vefforritunar; í Sheldon Cooper-deildinni leysa keppendur mörg smá verkefni og nokkur heldur stærri verkefni sem reyna á rökhugsun og útfærslu á lausnaraðferðum; og Howard Wolowitz-deildin er hugsuð fyrir byrjendur og þá sem hafa áhuga á að kynna sér forritun.

Í verðlaun er m.a. niðurfelling skólagjalda í Háskólanum í Reykjavík á fyrstu önn fyrir lið sem lenda í 1. sætunum í Leonard Hofstadter og Sheldon Cooper-deildunum. Þá veitir Nýherji einnig verðlaun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert