Grænir dagar í Háskóla Íslands

Frá Grænum dögum í Háskóla Íslands.
Frá Grænum dögum í Háskóla Íslands.

GAIA, félag meistaranema í umhverfis- og auðlindafræðum við Háskóla Íslands, stendur frá 13. mars til 16. mars fyrir Grænum dögum í skólanum. Markmiðið er að vekja nemendur og nærumhverfi skólans til umhugsunar um umhverfismál.

Þema daganna í ár er „græn neysla“ en þeir eru haldnir undir slagorðinu „Made in Earth, paid by Earth“ sem gæti útlagst á íslensku „Gert af jörðu, greitt af jörðu.“ Meðal viðburða eru skiptifatamarkaður, kvikmyndasýning og pallborðsumræður.

Dagskráin hefst á fyrirlestri Sigurðar Eyberg um vistspor Íslands, sem byggist á lokaritgerð hans úr náminu. Niðurstöður hans benda til þess að Íslendingar séu neyslufrekasta þjóð jarðar. Þá sýnir hann brot úr heimildarmynd sem gerð var í tengslum við ritgerðina þar sem Sigurður reynir að lifa af lágmarksvistspori.

Á fimmtudag verða pallborðsumræður undir yfirskriftinni „Hver stjórnar neyslunni?“ (Who controls the consumption?) Meðal framsögumanna verða Kjartan Bollason frá Félagi íslenskra umhverfisfræðinga og Auður Nanna Baldvinsdóttir, umhverfishagfræðingur hjá Orkustofnun. Þá verða umhverfisverðlaun GAIA afhent í fyrsta sinn en þau eru veitt aðila innan Háskóla Íslands sem stuðlað hefur að aukinni umhverfisvitund innan hans.

Að auki verða fyrirlestrar frá Umhverfisstofnun um umhverfismerki, frá Slow Food samtökunum og sérstök sýning á kvikmyndinni Waste Land í Bíó Paradís.

Aðgangur að viðburðum Grænu daganna er ókeypis og öllum opinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert