Ekki mokað á Hrafnseyrarheiði á næstunni

Í norðanverðri Hrafnseyrarheiði er áætluð stálhæð í skaflinum á veginum …
Í norðanverðri Hrafnseyrarheiði er áætluð stálhæð í skaflinum á veginum 6-8 metrar. Ljósmynd/Vegagerðin

Mikil snjóalög eru á Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði og telur Vegagerðin ekki raunhæft að moka þar alveg á næstunni.

Að mati Vegagerðarinnar er mokstur á Hrafnseyrarheiði ekki raunhæfur þessa dagana vegna mikilla og óstöðugra snjóalaga. Finna má einn skafl sem er að hluta til eftir snjóflóð þar sem stálið á veginum er á einum stað 5-6 metrar upp í 12 -15 metra. Vegagerðarmenn hafa skoðað snjóalög undanfarna daga. Síðastliðinn þriðjudag var mokað að norðanverðu í heiðinni upp að því svæði þar sem mikill snjór byrjar. Og niðurstaðan að mokstur er ekki raunhæfur.

Á Dynjandisheiði var mokað á miðvikudag áleiðis upp Pennusneiðing. Snjóalög þar verða skoðuð í framhaldinu en talið er að mikill snjór sé enn á Dynjandisheiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert