Agnes með meiri stuðning

Sr. Agnes M. Sigurðardóttir og sr. Sigurður Árni Þórðarson.
Sr. Agnes M. Sigurðardóttir og sr. Sigurður Árni Þórðarson.

Töluverður meirihluti vill Agnesi M. Sigurðardóttur sem næsta biskup samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallups. Niðurstaða úr biskupskjörinu ætti að liggja fyrir í næstu viku. Þetta kom fram í fréttum Sjónvarps í kvöld.

Þau Agnes M. Sigurðardóttir, sóknarprestur í Bolungarvík, og Sigurður Árni Þórðarson, prestur í Neskirkju, hlutu flest atkvæði í biskupskosningunni.  Þar sem hvorugur frambjóðenda hlaut meirihluta atkvæða er kosið aftur á milli þeirra tveggja. 500 hafa atkvæðisrétt í biskupskjöri og mun væntanlega liggja fyrir þann 25. apríl nk. hvort þeirra verður næsti biskups Íslands.

2.700 manns voru spurðir og tóku 62 prósent afstöðu. 60 prósent aðspurðra vildu sjá Agnesi M. Sigurðardóttur sem næsta biskup. 18 prósent Sigurð Árna Þórðarson en 22 prósent vildu hvorugt þeirra sem næsta biskup.

Nokkur munur er á afstöðu til frambjóðenda eftir kynjum. Nær sjö af hverjum tíu konum vilja Agnesi sem næsta biskup en fimm af hverjum tíu körlum. Þá eru fleiri karlar sem vilja  hvorugan frambjóðandann í embætti biskups.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert