Gagnrýna Evrópuviku

Brynja Halldórsdóttir, talskona Ísafold.
Brynja Halldórsdóttir, talskona Ísafold. mbl.is

Ísafold, félag ungs fólks gegn ESB-aðild, þykir skjóta skökku við að Evrópustofa sé með virkum hætti að hafa áhrif á umræðuna á Íslandi.

„Margra daga opin hátíðarhöld í tilefni Evrópudagsins svokallaða sem Evrópustofa stendur fyrir gefa ýkta glansmynd af aðlögunarferlinu og Evrópusambandinu sem slíku. Þessi hátíðarhöld sem fjármögnuð eru af ESB eru til þess fallin að draga úr þeirri neikvæðu ímynd sem Íslendingar réttilega hafa vegna framgöngu ESB og aðildarríkja þess.

Á sama tíma og blásið er til hátíðar er Evrópusambandið í málaferlum við Íslendinga fyrir EFTA-dómstólnum vegna Icesavekröfu Breta og Hollendinga. Þá eru ekki öll kurl komin til grafar í deilunni um makrílinn vegna samþykktar sjávarútvegsnefndar ESB-þingsins frá 24. apríl sl. að tillögu framkvæmdastjórnarinnar um reglur til þess að refsa ríkjum utan sambandsins sem að mati þess stunda ósjálfbærar fiskveiðar.

Verði Evrópustofa áfram starfrækt hér á landi á meðan aðlögunarferlið er í gangi er það von Ísafoldar að þeir sem að stofnuninni standa sjái sóma sinn í því að vera eingöngu til staðar innan veggja skrifstofunnar. Þá getur hver sá er vill aflað sér „hlutlægra“ upplýsinga um ESB frá Evrópusambandinu sjálfu án þess að Evrópustofa, með sendiherra ESB sér við hlið, blandi sér markvisst í íslensk innanríkismál og skekki lýðræðislega umræðu Íslendinga,“ segir í ályktun frá Ísafold.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert