„Ætla að draga andann í sumar“

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar. mbl.is/Eggert

„Ég ætla nú aðeins að draga andann eftir þetta þing. Mér finnst ég alveg mega það, en svo nota ég sumarið til að hugsa ýmsa hluti, m.a. þann sem þú nefnir.“ Þannig svaraði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra þegar hún var spurð á RÚV í morgun hvort hún ætlaði að vera formaður Samfylkingarinnar áfram.

„Það kemur að því að ég taki ákvörðun. Það eru prófkjör í haust og þá þarf ég eins og aðrir að taka ákvörðun um hvað ég geri,“ sagði Jóhanna.

Jóhanna Sigurðardóttir hefur verið alþingismaður síðan 1978. Hún verður sjötug 4. október í haust.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert