Nýja íþróttahúsið í Hveragerði, Hamarshöllin, var blásið upp seint í gærkvöldi. Margir íbúar fylgdust með þegar húsið reis, en um einn og tæpan klukkutíma tók að blása húsið upp.
Húsið er á Vorsabæjarvöllum ofan við Hveragerði. Umsjón með uppsetningunni höfðu þrír Slóvenar og einn Norðmaður, en fjölmargir Hvergerðingar komu að því að undirbúa verkið.
Upphaflega var fyrirhugað að blása húsið upp í gærmorgun en hætt var við það eftir að vind tók að hreyfa. Þeir sem ábyrgð báru á uppsetningunni lögðu mikla áherslu á að algert logn yrði að vera meðan húsið væri blásið upp því mjög erfitt yrði að ráða við húsið og forða því frá skemmdum ef það tæki að fjúka áður en búið væri að festa það niður.
Það var því komið undir miðnætti þegar Slóvenarnir gáfu grænt ljós og hafist var handa við að blása húsið upp.
Hamarshöllin er fjölnota íþróttahöll sem hýsir gervigrasvöll og fjölnota íþróttagólf í fullri stærð. Stærð íþróttahallarinnar er um 5.000 m². Höllin er upphituð úr tvöföldum dúk sem er borinn uppi af innri loftþrýstingi og loftþrýstingi á milli ytra og innra lags í útveggjum og þaki.