Gleðin við völd í grenjandi rigningu

Regnhlífar í öllum regnbogans litum eru áberandi við upphaf Gleðigöngunnar í ár en þrátt fyrir grenjandi rigningu er gleðin við völd og bros á hverju andliti. Um fjörutíu atriði eru í göngunni í ár og er mikill fjöldi kominn saman á Vatnsmýrarvegi þar sem gangan fer af stað klukkan 14.

Að sögn ljósmyndara mbl.is sem er að fylgjast með er mikill fjöldi fólks mættur í gönguna þrátt fyrir að veðrið mætti vera betra og flestir vopnaðir regnhlíf.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert