Íbúðalánasjóður á 283 íbúðir í ellefu sveitarfélögum á Suðurlandi. Innan við helmingur þeirra er í útleigu. Þetta kemur fram í Sunnlenska fréttablaðinu.
Langflestar þessara íbúða eru í Sveitarfélaginu Árborg, 134 talsins. Af þeim eru aðeins 49 í útleigu, ellefu eru óíbúðarhæfar eða í byggingu, en afgangurinn er óleigður.
Mikil eftirspurn er eftir leiguhúsnæði víða á Suðurlandi. Á Selfossi leigist þannig nánast hver kytra og hafa bæjaryfirvöld sem og þingmenn rætt við stjórnendur Íbúðarlánasjóðs ýmist um að koma fleiri íbúðum í útleigu eða selja þær á markaði.
Björgvin G. Sigurðsson, 1. þingmaður Suðurkjördæmis, segir við Sunnlenska fréttablaðið að stjórnarformaður sjóðsins, Jóhann Ársælsson, hafi sagt að allra leiða yrði leitað til að koma fleiri íbúðum í útleigu.
Björgvin hyggst taka málið upp á Alþingi þegar það kemur saman í haust.