Álversframkvæmdir að fara í gang

Efnisleg niðurstaða er komin í samninga Norðuráls og HS orku um útvegum orku til álvers í Helguvík. Þetta kom fram í ræðu Árna Sigfússonar, bæjarstjóra Reykjanesbæjar, á hátíðarsviði Ljósanætur í Reykjanesbæ í dag.

Sagt er frá þessu í frétt á vef Víkurfrétta. Ræðuna flutti hann við lok árgangagöngunnar þar sem þúsundir manna gengu saman niður Hafnargötuna í Keflavík og að hátíðarsvæðinu við Ægisgötu.

„Stærstu fréttirnar í atvinnumálum sem ég hef að segja ykkur eru þessar. Það er komin efnisleg niðurstaða í samninga Norðuráls og HS orku um útvegun orku til álvers í Helguvík. Stærsta hindrunin er þá frá í lok maraþon hindrunarhlaups,“ sagði Árni og bætti við:

„Ég þykist þess fullviss að það standi ekki á ríkisstjórninni að klára málið sín megin, fremur en sveitarfélögum.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka