Námslán verði niðurfelld að hluta

Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra hyggst leggja fram frumvarp fyrir Alþingi um niðurfellingu hluta námslána ef nemendur klára nám á tilsettum tíma.

Að öllum líkindum verður kveðið á um 25% niðurfellingu af höfuðstól ef nemendur klára námið á tilsettum tíma. Til að mynda ef BA nemendur klára háskólanám á 6 önnum. 

„Þetta frumvarp er á þingmálaskrá hjá mér eftir að þingið kemur saman,“ segir Katrín.

Elís Jón Guðjónsson aðstoðarmaður menntamálaráðherra segir enn ekki liggja fyrir hvernig nám verður metið lánshæft. „Það kemur í ljós í lok mánaðar. Á meðan við höfum ekki ákveðið neitt annað eru líkur á því að það verði allt námslánshæft nám,“ segir Elís en bætir við að ekki sé neitt ákveðið í þeim efnum.

Frumvarpið er unnið eftir tillögu starfshóps sem lagði til hvernig koma mætti breytingunum í framkvæmd. „Eftir að frumvarpið er tilbúið þarf að kostnaðarmeta það. Það er eilítið flókið og því liggur kostnaður við frumvarpið ekki fyrir ennþá,“ segir Elís.

Að sögn hans er stefnt að því að frumvarpið verði í síðasta lagi lagt fyrir 1. nóvember.

Í Morgunblaðinu í dag kemur einnig fram að starfshópur hafi sett fram aðgerðaáætlun til að að fjölga nemum í leikskólakennaranámi. Þar eru hugmyndir um að fella niður hluta námslána menntaðra leikskólakennara fyrir hvert ár sem þeir starfa í faginu í allt að fimm ár. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert