Ekki verður keypt ný björgunarþyrla fyrir Landhelgisgæsluna í samstarfi við Noreg, líkt og áætlanir voru uppi um. Ríkisstjórnin samþykkti í morgun tillögu Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra um að falla frá samstarfssamningi, sem gerður var við Noreg árið 2007 um kaup á nýrri björgunarþyrlu.
Ástæðan er mikið aðhald í ríkisútgjöldum. Í sameiginlegri yfirlýsingu frá Ögmundi og dómsmálaráðherra Noregs, Grete Faremo, kemur fram að kaup á björgunarþyrlum krefjist mikilla fjárfestinga sem ekki sé unnt að ábyrgjast á næstu árum. Þess í stað áforma íslensk stjórnvöld að bjóða út langtímaleigu á tveimur þyrlum til viðbótar við núverandi þyrlu Landhelgisgæslunnar til þess að tryggja að hér verði þrjár björgunarþyrlur tiltækar.
Ekki áhrif á samstarf í varnarmálum
„Hinn 30. nóvember 2007 undirrituðu dómsmálaráðherrar Íslands og Noregs samstarfssamning um kaup á nýjum langdrægum björgunarþyrlum. Frá því samningurinn var undirritaður hafa löndin tvö í sameiningu undirbúið kaup á einni nýrri björgunarþyrlu fyrir Ísland og var afhendingartími áætlaður á árunum 2018-2020 auk þess sem miðað var við kauprétt á tveimur öðrum þyrlum til viðbótar,“ segir í yfirlýsingu Ögmundar og Faremo.
„Samstarfið milli Íslands og Noregs um þyrlukaupin hefur verið hreinskiptið og gott og norsk stjórnvöld hafa lýst skilningi sínum á þeirri stöðu sem Ísland er í og á þeirri ákvörðun sem íslensk stjórnvöld hafa tekið um að segja upp samstarfssamningnum. Innanríkisráðherra Íslands hefur sent dómsmálaráðherra Noregs formlegt bréf þar sem samstarfssamningnum er sagt upp. Ekki er gert ráð fyrir því að ákvörðun þessi muni hafa áhrif á eða fresta innkaupaferli Norðmanna á nýjum björgunarþyrlum fyrir Noreg.
Ráðherrarnir eru einnig sammála um að uppsögn samstarfssamningsins um kaup á björgunarþyrlum hafi ekki áhrif á hina almennu samstarfsyfirlýsingu landanna í öryggis- og varnarmálum sem undirrituð var 26. apríl 2007.“