Fermingarbörn úr 65 sóknum í öllum landshlutum ganga í hús á tímabilinu frá og með deginum í dag til 6. nóvember, milli kl. 17.30 og 21 og safna peningum til vatnsverkefna Hjálparstarfs kirkjunnar í þrem löndum Afríku: Malaví, Úganda og Eþíópíu.
Starfsfólk kirkjunnar fræðir um 3.000 fermingarbörn um aðstæður í löndum Afríku, sérstaklega um skort á hreinu vatni. Mörg þeirra hittu Innocent Kaphinde og Doniu Phiri frá Malaví sem heimsóttu um 2.000 fermingarbörn um allt land og sögðu frá lífi sínu og aðstæðum. Í fræðslunni heyra börnin um árangur af verkefnum Hjálparstarfs kirkjunnar hvernig hægt er að safna rigningarvatni og grafa brunna sem veita hreint vatn sem gjörbreytir lífinu til hins betra. Með þessu fá fermingarbörnin tækifæri til að láta til sín taka og gefa Íslendingum tækifæri til að leggja sitt af mörkum til aðstoðar þeim sem ekki hafa aðgang að hreinu vatni.
Þetta er í 14. sinn sem söfnunin er haldin. Í fyrra söfnuðu fermingarbörn 8 milljónum króna. En samtals hafa þau í gegnum árin safnað um 75 milljónum króna til vatnsverkefna Hjálparstarfs kirkjunnar, segir í tilkynningu.